Jörð - 01.12.1948, Blaðsíða 159
JÖRÐ
157
-jji G VITJA ÞÍN ÆSKA heitir bók eftir frú Ólinu Jónas-
r i clóttur, alþýðukonu á Sauðárkróki. í bókinni eru bernsku-
og æskuminningar — og auk þess allmargar vísur Ólínu. Dr.
Broddi Jóhannesson hefur séð um útgáfuna og skrifað formála.
Margar góðar vísur eru í bókinni, en þó þykir mér meira koma
til minninganna. Er oft sagt mjög vel frá, brugðið upp ljósum
myndum af sérstæðum persónum og getið sérkennilegra siða,
sem nú eru úr sögunni. Er bókin gott og skemmtilegt rit. Út-
gefandi er Norðri.
BÁRA BLÁ. Sjómannabókin 1947. Gils rithöfundur Guð-
mundsson hefur tekið bók þessa sarnan, og er í hana
safnað sögum, ljóðum, sögnum, frásögnum og ýmsu öðru, er
lýtur að sjó eða sjósókn og farmennsku. Þarna er efni viðað
að úr fornsögunr og fornkvæðum, þjóðsögum, ævisögum, smá-
sagnasöfnum og ljóðabókum, og þarna eru frásagnir starfandi
sjómanna um svaðilfarir og hættuferðir, sjóslys, uppþot á skip-
um og langsiglingar. Þykir mér fyrir mitt leyti flestar frásagnir
sjómannanna verulega skemmtilegar og eitthvert það bezta les-
efni, sem bókin hefur að flytja. Ætlunin er, segir safnandinn
í formála, að gefa bráðlega út aðra sh'ka bók, og á ágóðinn að
renna í Byggingarsjóð Farmanna -og jiskimannasambandsins,
en það gefur bókina út. Útgáfan er látlaus en snotur, og bókin
hvort tveggja í senn, eiguleg og skemmtileg.
j RBÓK FERÐAFÉLAGS ÍSLANDS fyrir árið 1947 flytur
yfir hundrað blaðsíðna ritgerð um Dalasýslu eftir Þorstein
Þorsteinsson, þingmann og sýslumann Dalamanna, og virðist
mér ritgerð þessi liafa vakið meiri athygli en flestar þær, sem
birzt liafa um hliðstæð efni í Árbók Ferðafélagsins. Það er og
að verðugu. Mættu þeir, er síðar skrifa slíkar ritgerðir, vel hafa
þessa til hliðsjónar. Höfundurinn skrifar gott, en látlaust mál,
og er sérlega rökvís og laus við alla mælgi. Fyrst er lýst stað-
háttum yfirleitt, greint frá landkostum og atvinnuvegum,
drepið á sögufrægð og sögustaði, greint frá hreppaskiptum og
landnámi. Þá er getið þjóðleiða, og loks er sérstakur kafli um
hverja sveit. Höfundurinn kann sérlega vel að greina aðalat-