Andvari - 01.01.1888, Page 8
VI
-1
biskups embættis og varð að fara til Danmerkur að taka
biskups vígslu; kom Steiugrímur Tómási pá í Bessa-
^ yj staðaskóla/og settist hanu í efra bektyf í æíiágripinu er / %.
Tómási þannig lýst, eins og hann var um petta skeið:
»J>egar í skóla mátti sjá vott þeirra skapsmuna og hug-
arfars, er síðan leiddu til svo mikilla framkvæmda, að
fá eður engi eru dæmi til á landi voru um svo stuttan
aldur. Hann var pá ákafamaður í geði, kappsamur og
framkvæmdarsamur og stórvirkur og fljótvirkur og yfir-
taks ráðagóður hvað sem í skarst. Ekkert var lionum
leiðara en leti, lygi og als konar ranglæti og vildi hann
af öllu afli brjóta pað alt á bak aptur; fór þá stund-
um eins og opt fer um slíka menn, að hann þótti vera
nokkuð svo harðsnúinn og ráðríkur, en allra manna
var hann einlægastur og ástúðlegastur vinum sínum«.
Hann útskrifaðist úr skóla vorið 1827 og fór um sum-
arið til Kaupmannaliafnar háskóla. Tók hann bæði
fyrsta lærdómspróf (artium) og eins liið annað (philo-
sophicum) með lofi. Yorið 1829 fór hann lieim til ís-
lands snöggva ferð og bar svo til, er hann var í Reykja-
vík, að honum lenti saman í orðadeilu við einnafkaup-
mönnum par (Ivnudtzon stórkaupmann), að líkindum út
af íslenzku verzluninni, en pað varð til pess, að kaup-
menn synjuðu honum fars með skipum sínum til Tlan-
merkur; fór hann pá norður í land og tók sér far á
Akureyri og komst til Kaupmannahafnar á undan peim,
sem ætluðu að synja honum fars. Pegar hann var
kominn aptur til háskólans, tók liann að lesa guðfræði
af mesta kappi og leysti af hendi embættispróf í henni
að tveimur árum liðnum (í janúarmán. 1832) með loli.
Sama ár gaf hann út ritgjörð á dönsku: »Island fra den
intellectuelle Side betragtet«, og er hún um mentunar-
ástand íslands og sérstaklega skólamálið, sem stjórnin
þá var farin að hugsa um. Hafði Baldvin Einarsson
fyrst komið peirri hreyíingu af stað. Er ritgjörð pessi
rituð af miklum áhuga og fer Tómás einkum fram á, að