Búnaðarrit - 01.01.1934, Blaðsíða 192
BÚNAÐARRIT
BÚPENINGSSÝNINGAR
Almenningi til leiðbeiningar vill Búnaðarfélag íslands benda á
eftirfarandi atriði um búpeningssýningar þær, er það heldur árlega,
samkvæmt lögum nr. 32, 8. sept. 1931, um búfjárrækt.
A. Nautgripasýningar:
Þær skal halda á 5 ára fresti í hverju nautgriparæktarfélagi
(annarsstaðar ekki), enda hafi hlutaðeigandi sveitarstjórnir, eða
nautgriparæktarfélög, sent B. í. skriflega ósk um sýningu fyrir lok
marzmánaðar ár hvert. — Til verðlauna á sýningum þessum Ieggur
ríkissjóður 50 aura fyrir hvern framtalinn nautgrip á sýningar-
svæðinu, samkvæmt síðustu birtum búnaðarskýrslum, gegn jöfnu
tillagi útveguðu af sveitarstjórn eða nautgriparæktarfélagi annars-
staðar frá. — Auk þess greiðast 1. og II. verðl. á naut eingöngu
úr ríkissjóði. — Vorið 1935 verða sýningar haldnar í nautgripa-
ræktarfélögum á Suðurlandi (frá Skeiðará að Hvalfirði) eftir því
sem tilkynnt verður nánar síðar.
B. Hrossasýningar:
Þær skal halda í hverri sýslu landsins þriðja hvert ár, enda
hafi hlutaðeigandi sýslunefndir veitt fé til sýninganna og sýslumenn
tilkynnt félaginu það, ásamt kosningu sýningarstjóra og dómnefndar-
manna, fyrir aprílmánaðarlok ár hvert. — Til verðlauna leggur ríkis-
sjóður 10 aura fyrir hvert framtalið hross í sýningarumdæminu,
samkvæmt síðustu birtum búnaðarskýrslum, þó ajdrei minna en 100 kr.
til hverrar sýningar, gegn jöfnu framlagi úr hlutaðeigandi sýslusjóði.
Auk þess greiðir ríkissjóður 50 kr. til viðbótar hverjum I. verðl.
stóðhestanna. — Jafnframt héraðssýningunum skal gefa eigendum
fullorðinna stóðhesta kost á afkvæmasýningum, samkvæmt nánari
ákvæðum laga um búfjárrækt og tilheyrandi reglugerð. — Vorið 1935
verða hrossasýningar haldnar vestanlands (frá Hvalfjarðará að
Hrútafjarðará) á þeim tíma, er síðar verður ákveðinn, að fengn-
um svörum sýslumanna um framlag sýslusjöðs og skipun sýningar-
stjóra og dómnefndarmanna.
C. Hrútasýningar:
Þær skal halda í einstökum hreppum 4. hvert ár, enda hafi hlutað-
eigandi sveitarstjórnir sent félaginu skriflega ósk um sýningu fyrir júlí-
mánaðarlok ár hvert. — Til hrútaverðlauna leggur ríkissjóður 2 aura
fyrir hverja framtalda kind í hreppnum.samkvæmt síðustu birtum bún-
aðarskýrslum, gegn jöfnu framlagi, útveguðu af sveitarstjórn annars-
staðar frá,— Haustið 1935 verða hrútasýningar haldnar á svæðinu frá
Hítará að Hrútafjarðará, eftir því sem síðar verður nánar ákveðið.