Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2019, Page 273
XINYU ZHANG
272
Ú T D R Á T T U R
„Þannig er saga okkar“
Um sagnritunarsjálfsögur og skáldsöguna Hundadaga
eftir Einar Má Guðmundsson
Í skáldsögunni Hundadögum (2015) eftir Einar Má Guðmundsson vofir hin áleitna
spurning hvernig samband milli veruleika og skáldskapar sé yfir, enda er um að ræða
skáldskap um raunverulegar sögulegar persónur og atburði (Jörgen Jörgensen, séra
Jón Steingrímsson, Finn Magnússon, Guðrúnu Johnsen o.fl.), en það sama má segja
um allmargar aðrar skáldsögur sem kenndar eru við póstmódernisma. Kanadíski
bókmenntafræðingurinn Linda Hutcheon nefnir slík skáldverk sagnritunarsjálf-
sögur eða historiographic metafiction: skáldverk sem eru „sjálfslýsandi en leggja hald
sitt á sögulega atburði og persónur á þverstæðukenndan hátt“. Að mati Hutcheon
sýna sagnritunarsjálfsögur hvað best hvernig póstmódernismi er upptekinn af bæði
þekkingarfræðilegri og verufræðilegri stöðu sögunnar. Í greininni er fyrst drepið á
kenningar Hutcheon um póstmódernisma, póstmódernískan skáldskap og samband
milli sögu og skáldskapar, en þá er skáldsagan Hundadagar greind ítarlega með hlið-
sjón af hugtakinu sagnritunarsjálfsaga. Rýnt er í frásagnaraðferðir sögumanns, svo
sem samskipan/hliðskipan, metafrásagnarlegar athugasemdir, „við“-frásagnarorð-
ræðu og heimildanotkun, sem segja má að í vissum skilningi séu eftirlíking, afhjúpun
og paródía á því ferli sem búi að baki sagnfræðilegum ritum. Því er haldið fram
að endurskoðun sögumanns Hundadaga á 18. og 19. öldinni eigi rætur að rekja til
bankahrunsins 2008 á Íslandi þegar upplýsingargildin brugðust og leiddu til óreiðu
og óvissu. Meira að segja hefur sögumaður fundið ókennileg líkindi milli fortíðar-
innar og nútímans, eins og sagan hafi endurtekið sig. Í misgengi tímans birtist þá
vofa sögunnar og með því að endurvitja fortíðarinnar nálgast sögumaður Hundadaga
nútímann á allegórískan hátt. Sem sagnritunarsjálfsaga er skáldsagan Hundadagar
þannig „mótsagnakennd, eindregið söguleg og óhjákvæmilega pólitísk“, rétt eins og
póstmódernisminn sjálfur að viti Hutcheon.
Lykilorð: Póstmódernismi, póstmódernískar bókmenntir, sagnritunarsjálfsaga, Einar
Már Guðmundsson, Hundadagar, íslenska efnahagshrunið, saga og skáldskapur