Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1946, Blaðsíða 209
207
i lausu máli. Einnig var gerð samþykkt vegna hinnar fyrirhuguðu
herferðar g'egn rottunum, sem annars staðar er getið um. Um störf
hinnar svo kölluðu „heilbrigðislögreglu“ er mér lítt kunnugt, enda
hefur engin skýrsla frá henni borizt hingað í skrifstofuna, né til heil-
brigðisnefndar.
ólafsvíkur. Heilbrigðisnefndir lifa rólegu lífi.
Þingeijrar. Heilbrigðisnefnd í einum hreppi héraðsins. Heldur fund
árlega.
ísafj. 4 fundir á árinu. Þetta gert: 1) Áætlaður kostnaður við fram-
kvæmd heilbrigðismála í bænuxn, kr. 102000,00. 2) Sorpinu frá hús-
urn fundinn staður til uppfyllingar innan við Torfnesið. 3) Athug-
aðar 28 heilsuspillandi íbúðir. 4) Vorhreinsun ákveðin. 5) Útvegað
rottueitur, sem umbiðjendur fá ókeypis. 6) Rætt um úrganginn frá
fiskverkunarstöðvunum. 7) Umbætur fyrirskipaðar á skolpleiðslum í
leiguhúsi. 8) Rætt um gripahús á bæjarlóðixrni.
Hólmavíkur. Störf heilbrigðisnefndar ekki margbrotin og' ekki held-
ur rnikið þökkuð. Árlegar eftirlitsferðir til að athuga umgengni húsa,
séð urn hreinsun fjörunnar og þess háttar.
Sauðárkróks. Heilbrigðisnefnd Sauðárkróks starfaði eins og' áður.
Þó að henni verði ekki mikið ágengt, má fullyrða, að fyrir hennar til-
stilli er umgengni utan húss hér í kaupstaðnum alltaf heldur batnandi.
Ólafsfj. Eins og venjulega sá nefndin um almenna vorhreinsun
kaupstaðarins. Nefndin skoraði á bæjarstjórn að gera ráðstafanir til
þess að hefta göturyk í bænum, þar sem um óvenjulega bílaumferð
með þungaflutning var að ræða. En ekki var því sinnt. Nefndin skor-
aði einnig á bæjarstjórn að taka aftur upp sorphreinsun, en hún hafði
verið lögð niður. Það komst ekki á. Alveg bannaði nefndin að bera
slóg og fiskbein á tún innan vissra takmarka frá bænum. Bæjarstjórn
samþykkti að fela heilbrigðisnefnd að rannsaka húsnæði í bænum og
gefa skýrslu um þær fjölskyldur, sem byggju í óhollum íbúðum, með
tilliti til laga nr. 14 frá 7. marz 1946, uin opinbera aðstoð við bygg-
ingu íbiíðarhiisa í kaupstöðum og kauptúnum. Nefndin skoðaði alls
48 íbúðir og hús, og voru það lélegustu íbúðirnar, og svo þær ibiíðir,
sem ælla mátti að væru of þröngar. Niðurstaða nefndarinnar varð sú,
að 12 hús voru dæmd óhæf til íbúðar og svo léleg, að ekki mundi
svara kostnaði að gera við þau, enda ómögulegt í sumum tilfellum.
í þessum húsum voru 20 íbúðir með 94 manns. Samanlagt rúmmál ca.
916 jxi3, að meðtöldum eldhúsum og göngunx. í þessar íbúðir vantaði
9 V. S. 9 íbúðir áleit nefndin að ættu að leggjast niður sein fjölskyldu-
ibúðir vegna þrengsla og ýmissa annarra annmarka. í jxessuiix 9 íbúð-
tinx bjuggu 42 manns, og sanxanlagt rúmmál var ca. 450 nx3. Enn voru
12 íbúðir taldar of þröngar fyrir núverandi íbúa þeirra. I þeiixx bjuggu
76 xxiamxs, en saixianlagt rúmmál var ca. 930 m3. Aðrar íbúðir, er skoð-
aðar voru, taldi íxefndin viðunandi, hvað stærð snerti í hlutfalli við
ibúa, en þeim var hins vegar að ýmsu leyti ábóta vant. Ekki er svo
að skilja, að allar aðrar íbxiðir séu óaðfinnanlegar. 6 fjölskyldur í
íbúðunx þeim, sem skoðaðar voru, áttu voxx á íbiiðum i liinum nýju
húsum Byggingarfélags verkamanna.
Dalvíkur. Heilbrigðisnefndiix á Dalvík hefur gengizt fyrir „hrein-