Búfræðingurinn - 01.01.1943, Page 183
B Ú F R Æ ÐINGURTNN
181
hemendur skólans 1940 gáfu. Hlutskarpastur varð Guðjón Ól-
afsson.
Skemmtun var haldin 1. desember. Vigfús Helgason kennari
flutti ræðu. — AðaJ skemmtun skólans „l>orrablótið“ var á þorra-
þrælnum. Tveir skólapiltar fluttu ræður, Jón Hjálmarsson og Jónas
Valdimarsson. Þá voru sýndir tveir stuttir sjónleikir, leikfimi og
glímur.
V erknámsf erðir.
Um miðjan júnimánuð 1942 var farin verknámsferð inn Borgar-
fjörð og Dalasýslu. Gist var i ágætu yfirlæti á Hvanneyri. Skóla-
stjórinn, Runólfur Sveinsson, sýndi okkur staðinn, byggingar allar,
tún og engjar. l>ar þreyttu Hólamenn knattspyrnu við Hvanneyr-
inga. Aðra nótt gistuin við á nokkrum bæjum i Hörðudal i Dala-
sýslu við ágætar viðtökur. Ferðin beppnaðist vel. Fararstjóri var
Kristján Karlsson.
Á síðastliðnu vori var farin verknámsferð seint i júní um S.-
Þingeyjarsýslu og Eyjafjörð. Gróðrarstöð Ræktunarfélags Norður-
lands var skoðuð undir ágætri leiðsögu Ólafs Jónssonar tilrauna-
stjóra. Farið var fram að Klauf og kornyrkjubú Kaupfélags Ey-
firðinga skoðað. Þar er Erlingur Daviðsson bústjóri. Sýndi hann
kornakrana og gróðurbúsin. Þá var og komið.i lnismæðraskólann á
Laugalandi. Gist var i Laugaskóla og á Aluireyri. Ferðin beppnað-
ist vel. Fararstjóri var Björn Simonarson.
líyggðasafn.
Búnaðarsamband Skagfirðinga ákvað á aðalfundi sinuin siðast-
liðið vor að koina upp byggðasafni á Hólum. Árni Sveinsson bóndi
á Kálfsstöðum i Hjaltadal hefur á vegum búnaðarsambandsins safn-
að gömlum búsmunum i Skagafirði tvö síðastliðin ár. Honum befur
orðið vel ágengt og hefur þegar safnað alhniklu. Flestir munirnir
eru enn þá geymdir á dómkirkjuloftinu á Hólum. —- Það hefur
lengi átt að gera við gamla bæinn á Hólum, sem byggður var 1854
af Benedikt Vigfússyni prófasti. Þegar þeirri viðgerð verður lokið,
er gert ráð fyrir að koma byggðasafninu fyrir i bonum.
Hrossa'kynbótabú.
Á aukabúnaðarþingi 1942 var samþykkt að mæla með þvi við Al-
þingi og rikisstjórn, að komið verði upp kynbótabúi fyrir bross að
Hólum. Þetta mál fékk neikvæða afgreiðslu á Alþingi. Búnaðarþing
1943 tók málið upp að nýju og samþykkti, að Búnaðarfélag íslands
legði frarn 12 000,00 kr. lil stofnunar hrossakynbótabús á Ilólum. í
sumar bafa nokkur kynbótahross verið keypt, befur brossaræktar-