Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1946, Page 82
80
39. Morbus Little.
Þingeyrar. 2 ára drengur getur ekki gengið. Var prostigmín reynt,
og liðkaðist hann sýnilega við það. Verkun þó ekki langæ.
Þórshafnar. 2 tilfelli.
40. Morbus mentalis.
Búðardals. 2 sjúklingar með depressio mentis. Annar þeirra fékk
shockmeðferð í Reykjavík og' batnaði við það.
41. Neurasthenia.
Þingeyrar. Taugaveiklun afaralgeng og' 53 skráðir svo. Er leitt að
geta ekkert af viti gert fyrir þetta fólk, sem rennur á milli lækna í von
um bata. Yfirleitt finnst mér meðulum allt of mikið haldið að þessu
fólki og því sagt, að þetta eða hitt gangi að því. Psychotherapia í
liöndum sérfræðinga væri miklu skynsamlegri.
Þórshafnar. 7 tilfelli.
Vopnajj. Taugaveiklun virðist fara í vöxt. 5 tilfelli.
42. Otitis media.
Þingeyrar. Ekki ótíð, aðallega upp úr kvefi. Kona nokkur fékk
algera andlitslömun, en batnaði þó á löngum tíma, sem betur fór.
43. Oxyuriasis.
Þingeyrar. Mjög algeng'. 15 skráðir. Gentianviolettölurnar verka
vel, og helzt ætti allt heimilisfólk að taka þær, því að annars er ör-
ugg't, að sæki í sama horf.
Flateyrar. Er enn sem fyrr alltíður kvilli, og' gengur lítið með
lækninguna, því að fólk hirðir lítið um þetta.
Hólmavikur. Ekki sjaldgæfur kvilli. Gentianviolet reynist sæmi-
lega.
Hvammstanga. Ekki ótíður kvilli.
Hofsós. Nokkur tilfelli. Virðist þó ekki útbreiddur hér í héraðinu.
Ólafsfj. 11 sjúklingar skráðir.
Grenivíkur. Lítið útbreiddur kvilli. 5 sjúklingar, 3 þeirra úr Hrís-
ev frá sama heimili.
Egilsstaða. Talsvert algeng í hörnum og jafnvel fullorðnum líka.
Aðallega notað tabl. aluminii subacetatis, og gefst oftast vel, er fólk
fæst til að fara eftir fyrirmælum.
Búða. Árlega nokkur tilfelli.
Víkur. Nokkur tilfelli.
Vestmannaeyja. Algengur kvilli. Hreinlæti er höfuðatriðið til lækn-
ingar og varnar.
44. Paralysis agitans.
Þingeyrar. 3 tilfelli, allt gamalt fólk.
Ólafsfj. 1 kona.
Bi'iða. 1 miðaldra kona.
Vestmannaeyja. Karlmaður, 78 ára að aldri, dó úr veikinni. Var í
sjúkrahúsi Vestmannaeyja.