Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1994, Page 31
Ræður rektors
29
að ætla megi, að stúdentinn ráði við þær byrj-
unarkröfur, sem gerðar eru í þeirri náms-
braut, sem hann hyggst leggja stund á. Með
ráðgjöf mætti beina stúdentum inn á þær
brautir, sem þeim henta eða til annarra skóla,
sem bjóða nám, sem fellur betur að þeim
undirbúningi, sem þeir hafa fengið í fram-
haldsskóla. Þetta úrræði gæti dregið úr frá-
hvarfi frá námi og óþörfum kostnaði við ár-
ungurslaust nám á fyrsta misseri.
Ég hef nú gerst nokkuð langorður um
Þau málefni Háskólans, sem mest hafa verið
í almennri umræðu á þessu hausti. Mörg önn-
Ur málefni hefðu átt fullt erindi hingað svo
sem launakjör starfsmanna, uppbygging
framhaldsnáms við Háskólann, efling rann-
sókna og aukið samstarf við innlenda og er-
'enda háskóla og rannsóknarstofnanir, en þau
verða að bíða að sinni.
Ég vil þó ekki ljúka máli mínu án þess að
núnnast á Þjóðarbókhlöðu og þakka mennta-
uuilaráðherra sérstaklega þann áhuga og
skilning, sem hann hefur sýnt því máli. Fyrir
hans tilstilli eru nú í fjárlagafrumvarpi 335
uúlljónir kr. til næsta áfanga við bygginguna,
°g menntamálaráðherra hefur tjáð mér, að
hann hafi fullan vilja og metnað til ljúka
henni á 50 ára afmæli lýðveldisins 1994. Eg
hef áður lýst því, að með Þjóðbókasafni
munu verða straumhvörf í kennslu og rann-
sóknum við Háskólann og bylting í aðstöðu
nemenda til náms. Jafnframt mun þjóðinm
allri opnast brunnur fróðleiks, sem hún getur
ausið úr sér til endurmenntunar. Ráðherra
getur treyst því, að Háskólinn mun standa
óskiptur að baki hans í þessu framfaramáli og
veita allan þann málefnastuðning, sem hann
ntegnar, þótt hann sé fastheldinn á sitt happ-
drættisfé og telji sig ekki hafa neitt af því af-
lögu vegna vaxandi fjölda stúdenta og skorts
á byggingum til kennslu og rannsókna.
Kæru kandídatar, nú er komið að þeirri
stundu, að þið takið við vitnisburði Háskól-
ans um árangur ykkar í námi. Látið það þó
ekki verða lok okkar samskipta. Háskólinn
rnun alla tíð vera fús að veita ykkur aðstoð og
stuðning í störfum og hverja þá viðbótar-
menntun, sem þið kunnið að kjósa og hann
megnar að veita. Við þökkum ykkur ánægju-
legt samstarf og samveru og óskum ykkur og
fjölskyldum ykkar gæfu og gengis á komandt
árum. Guð veri með ykkur.
Brautskráning kandídata 1. febrúar 1992
Kœru kandídatar og gestir, ágœtir samstarfs-
menn
Eg býð ykkur hjartanlega velkomin til
þessarar Háskólahátíðar og brautskráningar
handídata. Þau prófskírteini, sem deildarfor-
setar munu afhenda hér, eru ekki aðeins vott-
Ur um árangur í langvinnu striti náms, heldur
uiikilvægur áfangi í lífi hvers stúdents, sem
yið fögnurn á þessari stundu. Framundan er
áhugavert starf eða næsti hjalli í framhalds-
uárni. Þar fylgja ykkur velfamaðaróskir Há-
skólans og einlægar vonir, að sú þjálfun, sem
þið hafið hlotið hér, geri ykkur sjálfbjarga til
að mæta erfiðleikum og nýta ný viðhorf og
þekkingu til aukins þroska.
Löng skólaganga tryggir ekki góða
uienntun. Allra síst gefur hún okkur tilefni til
að hreykja okkur yfir annað fólk. Stephan G.
Stephansson orti:
Hámenntaða virðum vér
vora lærdómshróka,
sem eru andleg ígulker
ótal skólabóka.
Margar kenningar og vinnubrögð, sem
fólk tileinkar sér í skóla, eru úr tengslum við
daglegt líf. Sá lærdómur býður þeirri hættu
heim, að námsfólk og fræðimenn telji sig
hafna yfir almúgann, sem ekki kann skil á
formúlum fræðanna. Þessa hættu þekkir há-
skólafólk mæta vel og hefur brugðist við
henni á ýmsa vegu, meðal annars með öflugu
kynningar- og fræðslustarfi. Þeir eru því fáir
lærdómshrókamir, sem hreykja sér yfir al-
menning í nafni fræða sinna.
Með þessu er þó ekki öll sagan sögð. Nú-
tíma þjóðfélag þarfnast fræðilegrar þekking-
ar og tæknikunnáttu í æ ríkara mæli. Aukin