Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1994, Blaðsíða 57
Ræður rektors
55
háskólasamfélagi. Stúdentar þurfa að aka um
borgina þvera til að fara milli kennslustaða, og
aðstaða til sjálfsnáms er einungis í boði fyrir
lítið brot stúdentafjöldans. í stað þess að auka
framlög sín til byggingarframkvæmda, hefur
ríkisvaldið komið af sér ýmsum kostnaði á
herðar Happdrættisins. Pannig er nú allt við-
hald húsa Háskólans greitt af happdrættisfé,
hll kennslu- og rannsóknartæki, innréttingar
rannsókna- og kennslustofa í samræmi við
nýjar þarfir og kröfur tímans, þar með talin
tölvuver og málver, þar sem nemendur hljóta
mikilvæga þjálfun. Árangurinn af starfsemi
Happdrættisins blasir við á háskólalóðinni, og
Háskólinn er þakklátur allri þjóðinni, sem hef-
ur stutt hann svo myndarlega með viðskiptum
v'ð Happdrættið undanfarin 60 ár. Við vitum
rrtsta vel, að oft hefur sá stuðningur fremur
helgast af málefninu en hagnaðarvon.
En halda menn, að jafnt væri á komið, ef
Háskólinn hefði eingöngu reitt sig á framlög úr
ríkissjóði? Áður en við svörum skulum við líta
u tvö dæmi. Þjóðin gaf sér gjöf í tilefni 1100 ára
hy ggðar í landinu 1974, sem sky ldi verða Þjóð-
a,rbókhlaða hér vestur á Melum. Húsið er löngu
r>sið, en því er ekki enn lokið. Það stendur sem
skel til minnis um innantómt afmælisheit. Al-
pingi vildi loks bæta um og lagði á þjóðina sér-
stakan eignarskattsauka til að ljúka fram-
kvænidinni. Hann hefur þegar skilað því, sem
td þurfti, en menn voru fundvísir á önnur verk-
efhi, sem þeir töldu brýnni. Þeir tóku skattinn
að lani, og eftir sat skelin tóm. Það er fyrst nú í
hð ríkisstjómar Davíðs Oddssonar, og þrátt
yrir þá miklu efnahagsörðugleika, sem við
eigum nú við að glíma, að markvisst er að því
stefnt að ljúka þessari nauðsynjaframkvæmd.
ar vil ég enn þakka menntamálaráðherra,
iat t G. Einarssyni, hve skelegglega hann hef-
Ur tekið á þessum málum.
Hitt dæmið er húsnæði Norrænu eldfjalla-
stöðvarinnar, sem einmitt tók til starfa árið
1974 fyrir nær tuttugu árum. Við upphaf henn-
ar var svo um samið við frændur okkar á Norð-
urlöndum, að stofnunin skyldi rekin fyrir sam-
eiginlegt norrænt fé, en við kostuðum húsnæði
ennar. Þeirhafa staðið við sinn hlut af mynd-
arskap, 0g stofnunin nýtur viðurkenningar
*ern ein fremsta rannsóknarstöð heims í eld-
jaJlafræðum. íslenska ríkið hefur hins vegar
ekki getað staðið við sinn hlut, að sjá stofnun-
inni fyrir viðunandi húsnæði, þótt það mundi
ekki kosta meira en tveggja ára framlag
frænda okkar til reksturs stofnunarinnar. Hún
hefur verið í sambýli við jarðfræði Háskólans í
gamla atvinnudeildarhúsinu. Það sambýli hef-
ur verið báðum til góðs en alltof þröngt og
langt undir því marki, sem stofnuninni yrði
boðið, ef hún færði sig til annarra Norður-
landa. Hvað eftir annað hafa forsvarsmenn
stofnunarinnar í vonleysi sínu leitað annarra
úrræða og svipast um eftir húsnæði til leigu
utan háskólalóðar. Slíkur aðskilnaður mundi
þó verða báðum til skaða, stofnuninni og Há-
skólanum. Háskólinn hefur fremur boðið, að
hús Norrænu eldfjallastöðvarinnar verði hluti
af líffræði- og jarðfræðihúsi, sem Háskólinn
hyggst byggja í Vatnsmýrinni austan Norræna
hússins. Menntamálaráðherra hefur tekið vel
undir þau áform, og ríkisstjómin hefur sam-
þykkt að stefna að því, að fé verði lagt fram til
byggingar hluta Eldfjallastöðvarinnar á árun-
um 1995 og 1996. Þá er hins vegar spurning,
hvort tekjur Happdrættisins leyfa, að Háskól-
inn byrji á nýju húsi, því að þær hafa dregist
svo saman vegna samkeppni frá öðrurn happ-
drættum, að þær hrökkva aðeins til nauðsyn-
legasta viðhalds húsa og tækjakaupa.
Ég held, að þessi dæmi sýni ljóslega, að
þrátt fyrir góðan vilja Alþingis og ríkisstjóma,
getur Háskólinn ekki reitt sig eingöngu á
framlög ríkisins. Honum er líka hollt að afla
sjálfur nokkurs fjár. Það gerir hann ábyrgari og
styrkir sjálfræði hans. Mesta hætta, sem að há-
skólum steðjar, er stöðnun. Háskólinn þarf að
vera í stöðugri þróun og vinna sífellt að
nýmælum í starfseminni. Vegna takmarkaðra
fjárveitinga undanfarin ár hefur Háskólinn
orðið að draga verulega úr kennslu og þyrfti í
raun að fækka verkefnum til að geta sinnt bet-
ur því, sent brýnast telst. Af þessum sökum
getur hann ekki tekið upp ýmis þörf nýmæli,
nema til kotni aukið fé úr öðrum áttum eða til
þeirra sé losað fé með hagræðingu. Hlutverk
Háskólans er að mennta og þjálfa æsku okkar
til starfa við framleiðslu og þjónustu um land
allt, að afla þekkingar og miðla henni og flytja
nýjustu þekkingu og tækni inn í landið til að
bæta lífsskilyrði þjóðarinnar. Happdrætti Há-
skólans er algerlega ómissandi í þeirri baráttu,
og í reynd ein höfuðforsenda þess, að unnt
rnegi verða að starfrækja Háskólann.