Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1994, Blaðsíða 53
jjæður rektors
51
um rannsókna okkar og þróunar við starf sam-
bærilegra stofnana og fyrirtækja innan Evr-
ópubandalagsins. Af rannsóknarstofnunum
Háskólans er nú einna mestur vöxtur í umsvif-
um Hagfræðistofnunar, og á þessu ári tók
einnig til starfa Viðskiptafræðistofnun. í jan-
Uar sl. stofnuðu Seðlabanki íslands, Lands-
banki íslands, íslandsbanki og Búnaðarbanki
Islands til Rannsóknarframlags bankanna til
Háskóla íslands, en því er ætlað að standa
straum af kostnaði vegna erlendra fræði-
manna og rannsókna í viðskiptafræði og hag-
fræði. Þá hefur Háskólinn nýlega þegið boð
Reykjavíkurborgar að kaupa hlut í Aflvaka
Reykjavíkur. Þau tengsl ættu að auðvelda
stuðning Háskólans við þróun og nýsköpun í
utvinnulífi borgarinnar og veita stúdentum og
kennurum þeirra verðug viðfangsefni. Fyrir
hlstilli menntamálaráðherra fengust 10 m. kr.
hl úthlutunar úr Nýsköpunarsjóði stúdenta,
sem gera stúdentum kleift að stunda rannsókn-
lr ísumarvinnu. Reykjavíkurborg hefur einnig
veitt 5,8 m. kr. til að styðja reykvíska stúdenta
h' mnnsóknarvinnu. Þessi framlög koma sér
vel fyrir stúdenta, sem eiga fárra kosta völ um
sumarvinnu, en geta með þessu móti fengið
■'hugaverð verkefni, sem tengjast námi þeirra
°8 skila mörg hver athyglisverðum árangri.
Háskólinn metur mikils þann vilja, sem í þess-
um stuðningi felst.
Háskólinn þarf að vera í stöðugri þróun og
v'nna að nýmælum í starfseminni. Vegna tak-
markaðra fjárveitinga hefur hann þó orðið að
óraga verulega úr kennslu og þyrfti í raun að
fækka verkefnum til að geta sinnt betur því,
sent brýnast telst. Af þessum sökum getur Há-
skólinn ekki tekið upp ýmis þörf nýmæli, nema
hj komi aukið fé úr öðrum áttum eða til þeirra
se losað fé með hagræðingu. Fjárráð leyfa
e^ki, að upp sé tekið nám, sem felur í sér ný
namskeið, en ýmsar leiðir eru færar, sem tengja
hamskeið, sem þegar eru kennd á nýjan hátt og
°pna þannig nýjar námsbrautir. Þannig ntun
Suðfræðideild hefja nám fyrir djákna á næsta
ennsluári. Það verður án teljandi útgjalda-
auka fyrir deildina, þar sem flest námskeiðin
ent þegar á kennsluskrá. Ætlun deildarinnar er
u skipuleggja þetta nám að mestu leyti sam-
Væmt gildandi reglum um 90 eininga
; nám í guðfræði. Auk þess gerir deildin
rað fyrir að bjóða upp á 30 eininga viðbótar-
nám fyrir fólk, sem þegar hefur lokið öðru há-
skólaprófi, svo sem hjúkrunarfræðingar eða
kennarar, sem taki þá guðfræði til 30 eininga til
að fá viðbótarréttindi sem djáknar. Einnig hafa
farið fram viðræðurmilli Samskiptamiðstöðv-
ar heymarlausra og heymarskertra, mennta-
málaráðuneytisins og Háskólans um kennslu í
táknmálstúlkun. Heymarlausir hafa verið
mjög einangraðir í íslensku samfélagi. Tákn-
mál er þeirra tungumál, en vegna skorts á túlk-
um hafa þeirekki getað aflað sér nauðsynlegr-
ar starfsmenntunar né nýtt sér aðra þjónustu
samfélagsins. Vegna tengsla við íslenskt mál
og samfélag er augljóst, að þetta nám er betur
komið hér heima en erlendis. Rætt er um nám
til B. A. prófs innan heimspekideildar, sem
annaðist þátt málvísinda í náminu, en Sam-
skiptamiðstöðin mundi annast allt, er lýtur að
heyrnarleysi, táknmáli og túlkun. Heimspeki-
deild hefur mikinn áhuga á að koma á námi fyr-
ir þýðendur og bjóða námskeið í erlendum
tungumálum fyrir nemendur í lögum og við-
skiptagreinum. Með nánari samskiptum Vest-
ur-Evrópuþjóða og samkeppni, sem ekki tak-
markast lengur við landamæri, vaxa einnig
kröfur til þekkingar starfsmanna. Auk verk-
færni þurfa þeir að kunna skil á tungumálum,
menningu og háttum þeirra þjóða, sem þeir
skipta við. Af þessum sökum m. a. hefur það
verið rætt, að Háskólinn ætti að bjóða viðbótar-
nám eftir fyrsta háskólapróf, sem tengir saman
mikilvægargreinar. Þar gætu hugvísindamenn
bætt við sig þekkingu í viðskipta- og tækni-
greinum, tæknimenn aukið fæmi sína í tungu-
málum og þekkingu sína á viðskiptum og við-
skiptamenn þekkingu sín á tækni og samfélög-
um. Þetta nám gætu deildir Háskólans skipu-
lagt í samvinnu við Endurmenntunarstofnun
Háskólans, svo að það yrði einnig aðgengilegt
þeim, sem vilja stunda námið með starfi. Innan
verkfræði- og raunvísindadeilda er stefnt að
efldri kennslu í framleiðslu- og matvælaiðnaði
til að þróa vinnsluaðferðir, sjálfvirkar vélar og
vinnslulínur til nota í íslenskum matvælaiðn-
aði op til útflutnings.
Ymis önnur mál eru í umræðu en
skemmra á veg komin. Þar má nefna náms-
braut í iðjuþjálfun, sem gæti orðið hliðstæða
og að einhverju leyti sameiginleg með náms-
braut í sjúkraþjálfun. Einnig hefur verið rætt,
hvemig Háskólinn gæti stuðlað að háskóla-