Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1994, Page 22
Jón Sveinbjönsson
telja Amos Wilder, bróður rithöfundarins Thomton Wilders, sem hefur átti
einn mestan þátt í að beina biblíufræðingum að bókmenntaaðferðum í rit-
skýringu. í Chicago voru stundaðar markverðar rannsóknir í félagsfræðum
sem höfðu mótandi áhrif á guðfræðina þar. Einnig var fomleifafræðin
gróskumikil og hafði Þórir talsverðan áhuga á þeirri grein og tók þátt í
fomleifagrefti í Jórdaníu.
Þórir Kristinn Þórðarson er fæddur í Reykjavík hinn 9. júní 1924.
Foreldrar hans vom hjónin Þórður Nikulásson, vélstjóri, sem ættaður var úr
Staðarsveit á Snæfellsnesi og Þorbjörg Baldursdóttir, húsmóðir, sem ættuð
var úr Þingeyjarsýslu. Þórir ólst upp á Hverfisgötu 88 þar sem foreldrar
hans og móðurfólk bjó. Eins og títt var um unglinga stundaði Þórir verka-
mannavinnu á sumrin, hann fór m.a. á síld. Vegna kunnáttu sinnar í ensku
fékk hann starf sem túlkur og verkstjóri í bretavinnunni árið 1940. Hann
starfaði bæði í skátahreyfingunni og KFUM. Hann lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík 1944 og stundaði nám við guðfræðideild og
heimspekideild Háskóla íslands 1944-1945. Hann stundaði nám í semi-
tískum málum við Uppsalaháskóla 1945-1946 og í guðfræði og semitískum
málum við Árósaháskóla 1946-1949. Hann lauk fyrrihlutaprófí í guðfræði
við háskólann í Árósum 1949 og sama ár prófi í semitískum málum við
Lundarháskóla. Hann lauk embættisprófi í guðfræði við guðfræðideild
Háskóla íslands 1951 og stundaði síðan nám og rannsóknir við
guðfræðideild og heimspekideild (Oriental Institute) háskólans í Chicago
árin 1951-54 og 1957-59 og var þá gistiprófessor við McCormick
Theological Seminary. Doktorsprófí lauk hann þaðan árið 1959. Doktors-
ritgerð hans er formsöguleg rannsókn á versunum 6 og 7 í 34. kafla
Annarrar Mósebókar og nefnist The Form-historical Problem ofEx. 34.6-
7.1 Chicago voru Þóri falin ýms rannsóknarverkefni, honum var m.a. falið
að rita kaflana um Abraham, Sáttmálann og Móse í Encyclopaedia Britann-
ica.
Þórir var skipaður í kennslustólinn í gamlatestamentisfræðum við guð-
fræðideild Háskóla íslands 1. október 1954, fyrst sem dósent, skv. þágild-
andi lögum, en síðan sem prófessor frá 1. september 1957. Hann var
borgarfulltrúi í Reykjavík 1962-1970 og var jafnframt varaforseti borgar-
stjómar og varamaður í borgarráði sama tíma. Hann gegndi á þessum árum
ótal trúnaðarstöðum bæði fyrir Háskólann og Reykjavíkurborg.
20