Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1994, Page 150
Þórir Kr. Þórðarson
jarðarhafinu, til borgarinnar Jaffa. Þar kaupir hann sér far alla leið til
Spánar (Tarsis).
Jónas er á flótta. Skipið leggur af stað, en ekki höfðu þeir lengi siglt er
fárviðri skellur á. Særokið rýkur um reiða skipsins og himinháar öldur hafa
skipið að leiksoppi og hóta að færa það í kaf. Á dekkinu er allt á tjá og
tundri er skipverjar berjast við ofviðrið og kasta öllu lauslegu fyrir borð og
einnig farmi skipsins í þeirri von að það sökkvi ekki sökum ofhleðslu. Þeir
reka upp skelfmgaróp og hrópa hver á sinn guð.
En hvar er Jónas? Skipstjórinn leitar hans um allt og finnur loksins. Þar
liggur Jónas neðst niðri í lestum skipsins steinsofandi!
Þessi sýn er næsta spaugileg. En hún vekur líka óhug. Jónas er í djúpum
svefni, nærri því eins og vankaður. Flótti hans er með einhverjum hætti í
andstöðu við hið rétta eðli hlutanna, brot á rökum lífs hans. Skipstjórinn
reynir að vekja hann:
Hvað gengur að þér? Þú sefur! Rístu upp og ákallaðu guð þinn! Ef til vill hugsar
hann náðarsamlega til okkar svo að við förumst ekki!
Athyglisvert er að skipstjórinn ávarpar Jónas hinu sama orði, „Rís upp,“
(qúm) og Drottinn ávarpaði Jónas með í upphafi sögunnar: „Leggðu af
stað“ (qúm). Það er eins og kall Guðs til ábyrgðar, sem Jónas var á flótta
undan, sé endurtekið fyrir munn hins „heiðna“ skipstjóra. Þetta kall um að
standa á fætur, rísa upp og takast á við lífið hefur sína andstæðu í lífi
Jónasar, sem sífellt fer niður. Hann fer ofan (yarad) til Jaffa, hann fer niður
(yarad) í skipið (fer um borð), og í skipinu, þegar allt er á tjá og tundri uppi
á dekki í vitlausu veðri, fer hann niður (yarad) í neðsta rúm í skipinu og
sofnar þar í uppgjöf sinni.
Nú fer að renna upp ljós fyrir skipverjunum. Það hlaut að vera til
skýring á þessu skyndilega óveðri sem brast á eins og þruma úr heiðskíru
lofti og ógnaði lífi þeirra og ætlaði að færa skipið í kaf. Og þeir kunnu
örugga aðferð til þess að komast að því hvað ylli ógæfunni og hvernig
komast mætti úr lífsháskanum. Þeir kasta hlutum og teningamir sýna að
farþeginn furðulegi á sök á þessu!
Og nú hefst yfirheyrsla yfir Jónasi:
Segðu okkur: í hvaða erindagerðum ertu? Hvaðan kemur þú? Frá hvaða landi ertu?
Af hvaða þjóð?
148