Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1994, Page 206
Þórir Kr. Þórðarson
En í fararbroddi í framkvæmdamálum og starfsháttum hins unga
háskóla var Alexander Jóhannesson, enda sex sinnum kosinn rektor af jafn-
ingjum sínum.2
n
Háskólinn og íslenskt þjóðlíf — Alexander kveður sér hljóðs
Alexander Jóhannesson gerðist svonefndur einkakennari við Háskólann
1915. Var það að þýskri fyrirmynd, þar sem þeir menn verða Privatdozent
sem hljóta viðurkenningu háskóla til þess að halda fyrirlestra en þiggja
ekki föst laun. Hlaut Alexander að vísu 1000 kr. á ári frá Alþingi til að
flytja fyrirlestra um þýska menningu. Hann var skipaður dósent 1925 og
prófessor 1930.
Strax og hann kom að hinum þröngbýla háskóla sem hýrðist í nokkrum
stofum í Alþingishúsinu, þar sem ekki var einu sinni rúm fyrir eldspýtna-
stokk að sögn dyravarðarins og háskólaritarans Ólafs Rósinkranz, hóf hann
fræðastarf í nánum tengslum við menninguna í landinu og athafnalífið.
Það er athyglisvert með hverjum hætti Alexander Jóhannesson kvaddi
sér hljóðs með þjóðinni sem ungur doktor frá Þýskalandi og Privatdozent
við Háskólann. Hann lét ekki samanburðarmálfræðina sníða sér þröngan
stakk heldur tók til máls um flest svið menningar og bókmennta. Hann
skrifar í blöð eins og Vísi um þjóðleikhúsmálið og um stúdentaheimili, í
Morgunblaðið um íslenska tungu og um Bólu Hjálmar, í Lesbók Mbl. um
flugferðir og um flugferðir á íslandi (1925n), í Ægi um sfldarleit úr lofti
(1929), í Tímann um flugmál íslands, en einnig í ísafold um ættamöfn og
málfræði (en hann var mjög andvígur ættamöfnum), í Óðin um nýjar lista-
stefnur og um skáldskap Hannesar Hafsteins, í Eimreiðina um málaralist
nútímans og um Þórarin B. Þorláksson, í Almanak Hins ísl. þjóðvinafélags
um orðmyndanir alþýðu og auðvitað í Skími. Hann skrifar um leiklist, um
fegurð kvenna í skáldskap, um fyrstu íslensku myndlistarsýninguna 1920
og um Hindenburg yfirhershöfðingja. Hann kynnir Schiller, Goethe og
Heine með þýðingum á íslensku og gefur út íslensk Ijóðasöfn svo sem Gest
2 Kjörinn 17. júní 1932 til eins árs; endurkjörinn 17. júní 1933 til eins árs;
endurkjörinn 17. júní 1934 til eins árs; kjörinn 15. maí 1939 til þriggja ára; kjörinn
14. maí 1948 til þriggja ára; endurkjörinn 15. maí 1951 til þriggja ára.
204