Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2008, Page 34
ANNA ÞORBJÖRG ÞORGRÍMSDÓTTIR
fjárveitingavaldsins sem dreifir íjármagni eftir pólitískri stefnu. Sú pólitíska
stefina byggir á þeim grundvallarmisskilningi að setja megi samasemmerki
á milli miðlunar einstaklingsbundinnar sögusýnar annars vegar og varð-
veislu minja og menningararfs eins og UNESCO skálgreinir hann hins
vegar.
Flest söfn á landsbyggðinni eru lítil og fjársvelt og ná varla að halda
utan um grunnstarfsemina. Eins og fram kemur í Safnastefnu á sviði þjóð-
minjavörslu fyrir árin 2003-2008 þarf að lyfta grettistaki til þess að efla
söfnin og gera þeim kleift að sinna lögbundnu hlutverki sínu.71 Það er
fúllyrðing sem á jafn vel við í dag og fyrir fimm árum síðan og mikilvægi
safna við varðveislu og miðlun menningararfsins er síst minna en þá.
Fjárveitingar til minjavörslunnar hafa á þessum tíma staðið í stað, þrátt
fyrir að varðveisla menningararfsins sé, þegar öllu er á botninn hvolft,
undirstaða menningartengdrar ferðaþjónustu og at\dnnusköpunar sem
tengist henni.
Minjavarslan starfar á landsvísu og aukið fjármagn til minjavörslu þýð-
ir sjálfkrafa aukin atvinnutækifæri á landsbyggðinni. Þannig fóru 70% af
styrkveitingum Safhasjóðs árið 2008 til safha utan höfuðborgarsvæðis-
ins.72 Uppbygging safha og varðveisla minja er því stórt hagsmunamál
landsbyggðarinnar. Söfn varðveita heimildir um sögu lands og þjóðar og
safheignin er endalaus uppspretta nýrrar þekkingar og nýrra miðlunar-
tækifæra. Söfh eru, ef vel er að þeim búið, miðstöðvar menningar þeirra
samfélaga sem þau starfa í og sem slík þátttakendur í menningartengdri
ferðaþjónustu. Má því vel staldra við og velta fyrir sér stöðu safna á lands-
byggðinni og ekki síður stöðu menningartengdrar ferðaþjónusm, hefði
Safhasjóður verið efldur um 600% á síðastliðnum sex árum.
71 Safnastefiia á sviði þjóðmhijavörslu fyrir árin 2003-2008. Reykjavík: Menntamála-
ráðuneyti, 2003, bls. 8 o.áff.
'2 Uthlutun úr Safnasjóði árið 2008. Safnaráð: http://www.safnarad. is/safnastarf/
upload/files/pdf/styrkveitingar_2008_vefsida.pdf. [Sótt 22. júní 2008.] Upp-
lýsingaheftifyrir söfn vegna umsókna í Safnasjóð 2009, Reykjavík: Safnaráð, 2008,
bls. 7 o.áff. http://www.safnaráð.is/safnastarf/upload/files/pdf/upplysingahefhi_
til_safna_v_styrkveitinga_2009.pdf. [Sótt 21. júní 2008.]
32