Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1994, Blaðsíða 50
48
Árbók Háskóla íslands
Brautskráning kandídata 26. júní 1993
Menntamálaráðherra Ólafur G. Einarsson,
kœru kandídatar og gestir, ágœtir samstarfs-
menn.
Eg býð ykkur hjartanlega velkomin til
þessarar Háskólahátíðar og brautskráningar
kandídata.
Sá föngulegi hópur, sem hér er kominn til
að taka við vitnisburði um árangur í ströngu
námi, er okkur og þjóðinni allri sérstakt
gleðiefni. Okkur er ljósara nú en áður, að við
getum ekki byggt velferð okkar á aukinni
sókn í auðlindir náttúrunnar. Við verðum að
leita leiða til að auka verðmæti þeirra afurða,
sem náttúran gefur, og skapa ný verðmæti
með þekkingu og hugkvæmni. Til þess þurf-
um við trausta almenna menntun í grunnskól-
um og framhaldsskólum, nútímalega verk-
menntun, sem laðar til sín hæf ungmenni, og
síðast en ekki síst fjölbreytta háskólamennt-
un, sem veitir þroska og yfirsýn og þjálfun til
sérhæfðra starfa og rannsókna.
Við erum ekki ein um þessa trú. Hún
byggir á reynslu þeirra þjóða, sem fremstar
standa og við viljum líkjast um velferð og
lífshætti. Nútímaþjóðfélag þrífst á þekkingu.
Hún veitir ánægju í líf okkar og gerir hvern
starfsmann hæfari til að átta sig á nýrri tækni
og breyttum viðhorfum. Meðal nágranna-
þjóða okkar jókst aðsókn að háskólanámi
fyrir tveimur áratugum. Þær eiga því vænan
hóp háskólamenntaðra manna, en samt óttast
þær, að ekki fáist nægilega mörg ungmenni
til að stunda það stranga nám, sem veitir
þjálfun til rannsóknarstarfa og sköpunar
nýrrar þekkingar. Þær telja sér nauðsyn að
hvetja ungt fólk til náms og sjá starfandi fólki
fyrir greiðum aðgangi að endurmenntun og
viðbótarnámi, svo að það geti tileinkað sér
nýjungar og nýtt þær í atvinnulífi.
Við urðum seinni til að átta okkur á þess-
ari þróun. Aðsókn að háskólanámi hér hefur
reyndar fylgt svipuðu ferli og hjá nágranna-
þjóðum en með nokkurra ára seinkun. Þið
kandídatar, sem við samfögnum í dag, eruð
einmitt sönnun þess, að unga kynslóðin skil-
ur gildi menntunar og vill nýta hana í lífi og
starfi. Þar er vert að hafa í huga, að háskóla-
menntun er ekki eingöngu menntun til sér-
greinds starfs, heldur á hún að rækta þroska,
víðsýni og sveigjanleika til að læra ný vinnu-
brögð. Þetta vita vinnuveitendur nágranna-
þjóða okkar, sem sækjast eftir háskólamennt-
uðu fólki lil starfa. Þar hefur háskólagengnu
fólki því haldist betur á vinnu en þeim, sem
notið hafa minni skólagöngu. Hér er skiln-
ingur á gildi háskólamenntunar til starfa ekki
jafn almennur, en hann fer þó vaxandi. Við
heitum þess vegna á ykkur, ungu kandídatar,
að þið látið það sannast, að háskólanámið
hafi gert ykkur færari til skapandi starfa og
vonum, að sú menntun, sem þið hafið hlotið,
nýtist sem best þjóðinni allri í baráttu hennar
fyrir aukinni menningu og bættum efnahag.
A þessu ári hefur farið fram ágæt umræða
um mótun menntastefnu og málefni skóla.
Mest hefur þar verið rætt um grunnskóla og
framhaldsskóla. Minna hefur verið fjallað um
háskólastigið og hvemig Háskóli Islands og
aðrir háskólar landsins eiga að þjóna vaxandi
fjölda stúdenta. Fyrir þremur áratugum var
háskólakennsla hér svo fábreytt, að stór hluti
nýstúdenta varð að sækja háskólanám sitt til
annarra landa. Nú byrja flestír stúdentar nám
sitt hér heima. Þar sem aldursárgangar hafa
náð hámarki í fjölda, mun breyting í aðsókn
að Háskóla Islands og öðrum háskólum lands-
ins fara eftir því, hve stór hluti árgangs lýkur
stúdentsprófi og leitar eftir námi á háskóla-
stigi. Aðsókn að framhaldsskólum bendir til
þess, að þar muni innan skamms 8 af hverjum
10 í árgangi stunda nám til tvítugs. Ef ekki
verður breyting á námsframboði innan fram-
haldsskólans, munu þessir námsmenn Ijúka
stúdentsprófi af einhverri gerð. Stór hluti
þeirra mun síðan leita eftir háskólanámi til
starfsmenntunar. Þar sem aðrir skólar á há-
skólastigi taka aðeins við takmörkuðum
fjölda, verða flestir að sækja til Háskóla Is-
lands, ef þeir eiga að stunda háskólanám sitt
hér á landi. Þess munu engin dæmi með öðr-
um þjóðum, að svo stór hluti árgangs stundi
hefðbundið fræðilegt háskólanám.
Ef Háskóli íslands ætti að sinna öllum
þessum fjölda, yrði hann að taka upp marg-
víslegar námsbrautir, sem veittu ítarlega
starfsþjálfun, en fælu í sér mun minni fræði-