Hugur - 01.01.2012, Side 41

Hugur - 01.01.2012, Side 41
 Andleg velferð mannkyns 41 að fullu. Ýmsir einblína á lið tvö í rökfærslu Mills, að nær algert hugsunarfrelsi og málfrelsi séu ófrávíkjanleg skilyrði þess að við fáum uppgötvað allar, eða sem flestar hliðar sannleikans. Vilji menn skilja málflutning Mills fyrir hugsunarfrelsi og málfrelsi í heild sinni er varasamt að einblína á sannleiksrökin á kostnað hinna rakanna. Sú nálg- un verður enn varasamari skeyti menn ekki um orðalagið „andleg velferð mann- kyns“.15 Þá virðast rök Mills fyrir hugsunarfrelsi og málfrelsi standa á brauðfót- um. Ef tilgangur hugsunarfrelsis og málfrelsis er einungis að tryggja að fólk hafi sannar skoðanir eða hátt hlutfall slíkra skoðana (á móti röngum skoðunum)16 vaknar nefnilega sú spurning hvort ekki mætti ná markmiðinu með því að bann- færa rangar skoðanir og helbera þvælu (t.d. tilgátuna um að jörðin sé flöt). Væri þá ekki betra að láta eitthvert kennivald innræta öllum sannar skoðanir eða þær sem eru taldar sennilegastar á hverjum tíma, t.d. bestu kenningar vísindamanna? Ef við einblínum alfarið á sannleiksrökin, virðist Mill ekki hafa haldföst rök gegn vel heppnaðri ritskoðun, þ.e. ritskoðun sem einungis útilokar rangar skoðanir.17 En Mill leggur ríka áherslu á að það skipti ekki bara máli hvaða skoðanir menn hafa (sannar eða ósannar) heldur líka hvernig menn það eru sem hafa skoðanirnar.18 Hann gefur lítið fyrir þá sem þiggja skoðanir sínar umhugsunarlaust frá öðrum, læra þær eins og páfagaukar, þekkja ekki inntak þeirra o.s.frv. Hann fullyrðir að „níutíu og níu af hverjum hundrað svonefndra menntamanna [sé svo] farið […] að í eiginlegasta skilningi þekkja þeir ekki þá kenningu, sem þeir fylgja“ (85). Mill þarf þekkingarrökin og kreddurökin19 til að verja þá afstöðu sína að hugsunarfrelsi og málfrelsi eigi að vera því sem næst alger, og ná t.d. til skoðana sem eru alfarið rangar eða álitnar fullkomlega siðlausar (208).20 Ef túlkendur Mills vanræktu ekki svo mjög kreddurökin, og jafnvel þekkingarrökin, myndu þeir vafalítið gera meira með andlega velferð mannkyns. Hvað svo sem slík velferð merkir að endingu má ljóst vera af liðum þrjú og fjögur að ofan að hún felur í sér eða krefst hæfileika til að tileinka sér skoðanir, skilja inntak þeirra, þekkja forsendur þeirra o.s.frv.21 Sá sem ekki hefur slíkan hæfileika, eða hefur sökum hugsunarleti eða þrælslundar glutrað honum niður, býr ekki við andlega velferð að dómi Mills. Andleg velferð krefst m.a. sjálfstæðrar hugsunar, eiginlegs hugarstarfs; á ensku tíðkast nú um stundir orðalagið „að hafa eigin huga“ („having a mind of your own“) í þessu samhengi sem andstæðu þess að vera andlegt útibú annarra manna eða stofnana. Hver hinna fernu raka Mills gefa okkur þannig sterkar vísbendingar um hvað Mill á við með orðalaginu „andleg velferð“ en það er öfugsnúið að setja eitthvert 15 Og þetta tvennt fer auðvitað oft saman. 16 Það er í sjálfu sér ekki erfitt að auka fjölda sannra skoðana ef maður samþykkir t.d. allar skoðanir. Því tala ýmsir fræðimenn um hátt hlutfall sannra skoðana í þessu samhengi. 17 Brink gerir sér mikinn mat úr þessari athugasemd. Mill gæti hins vegar ennþá haft góð empírísk rök gegn málfrelsisskerðingu því sagan sýnir að fá dæmi ef einhver eru um svo vel heppnaða rit- skoðun. 18 Ten 1980: 125 o.áfr. 19 Óskeikulleikarökin myndu einnig gagnast honum hér því þau mæla gegn því að við reynum að mynda skoðanir fyrir aðra án þess að leyfa þeim að heyra gagnrökin. 20 Aftanmálsgrein 9. 21 Sjá Róbert H. Haraldsson 2004a: 83–109.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208
Side 209
Side 210
Side 211
Side 212
Side 213
Side 214
Side 215
Side 216
Side 217
Side 218
Side 219
Side 220
Side 221
Side 222
Side 223
Side 224
Side 225
Side 226
Side 227
Side 228
Side 229
Side 230
Side 231
Side 232
Side 233
Side 234
Side 235
Side 236
Side 237
Side 238

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.