Hugur - 01.01.2012, Side 55

Hugur - 01.01.2012, Side 55
 Andleg velferð mannkyns 55 einmitt femínistar konum“, spyrja þær Patai og Koertge, „að neita að láta þrúgandi hugmyndafræði þagga niður í sér?“61 Sommers gerir greinarmun á þeim sem hún nefnir kyngervisfemínista (e. gender feminists) annars vegar og jafnréttisfemínista (e. equity feminists) hins vegar. Hún lýsir sjálfri sér sem jafnréttisfemínista.62 Jafn- réttisfemínistar krefjast algers jafnréttis karla og kvenna – jafnra tækifæra, en ekki jafnra útkoma – en róttækir femínistar telja að til að konur öðlist frelsi og jafnrétti nægi ekki jafnrétti (jöfn tækifæri) heldur þurfi að rífa feðraveldið (e. patriarchy) upp með rótum. Feðraveldið hafi mótað sögu og samtíð, vísindi og listir, hugsun okkar og orðfæri. Við þurfum því, samkvæmt þessari speki, að endurskoða og jafnvel endurskapa vísindi og listir, breyta hugsunum okkar og öllu tungutaki ef við viljum í alvöru ná markmiðum kvenfrelsisbaráttunnar. Mér sýnist Patai og Koertge einkum beina spjótum sínum að róttækum kyngervisfemínisma þótt þær ræði oftast um femínisma án fyrirvara. Eindregnir femínistar ættu því að geta tekið undir gagnrýni þeirra.63 Markmið þeirra er ekki heldur að gagnrýna allar kvennafræðideildir bandarískra háskóla.64 Ég fylgi dæmi Patai og Koertge og ræði í framhaldinu um femínisma, femínisma í kvennafræðum og femíníska kvennafræði en bið lesendur að hafa ofangreinda fyrirvara í huga.65 Tilgáta mín um dæmin er tvíþætt. Hún er annars vegar sú að í báðum til- vikum ríki hóphugsun og andrúmsloft óttans af því tagi sem einkennir samfélög þar sem fólk býr ekki við andlega velferð. Hins vegar held ég því fram að rætur andrúmsloftsins séu í grunninn hinar sömu og hjá Mill: skortur á hugsunarfrelsi og málfrelsi og skortur á gagnrýninni hugsun. Viðkomandi einstaklingar hafa ekki sett sig í spor þeirra sem líta málin öðrum augum, þeir forðast átök, leyfa öðru en sannleiksástinni að ráða við skoðanamyndun, reyna að útiloka aðra frá því að kynna sér gagnrökin, verða sjálfir illa fyrir barðinu á hugmyndafræði sinni, o.s.frv. Skoðum fyrst hreyfinguna í kringum bældar minningar. Það er mikilvægt rannsóknarefni hvernig og hvers vegna gagnrýnin hugsun var útilokuð í þessari hreyfingu. Ein ástæðan tengist sjálfu viðfangsefninu, meintum fórnarlömbum kynferðislegrar misnotkunar. Það var beinlínis talið rangt að draga í efa orð þeirra sem lifað höfðu slíka glæpi af (e. survivors). „Trúðu fórnarlambinu [survivor]“, ráðleggja Bass og Davis ráðgjöfum á þessu sviði. „Jafnvel þótt hún efist stundum um sjálfa sig, jafnvel þótt minningar hennar séu óljósar, jafnvel þótt það sem hún segir þér hljómi of öfgakennt, trúðu henni.“66 Og þær brýna ráðgjaf- ana til að vera staðfastir í trúnni: Þú verður að trúa því að skjólstæðingur þinn hafi verið misnotuð kyn- ferðislega, jafnvel þótt hún efist stundum um það sjálf. Efinn er hluti af ferlinu að horfast í augu við misnotkunina. Skjólstæðingur þinn þarf á því að halda að þú sért stöðugur í trúnni á að hún hafi verið misnotuð. 61 Patai og Koertge 2003: xx. 62 Sommers 1995: 19–22, 134–135. 63 Það er einmitt þetta sem mér virðist Joan Mandle (2000) gera. 64 Patai og Koertge 2003: xxiii–xxiv. 65 Um gagnrýni á Patai sjá t.d. yfirlit í Nathanson og Young 2006: 269–308, 573–585. 66 Bass og Davis 2002: 316. Sjá umræðu í Ofshe og Watters 1994: 21.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208
Side 209
Side 210
Side 211
Side 212
Side 213
Side 214
Side 215
Side 216
Side 217
Side 218
Side 219
Side 220
Side 221
Side 222
Side 223
Side 224
Side 225
Side 226
Side 227
Side 228
Side 229
Side 230
Side 231
Side 232
Side 233
Side 234
Side 235
Side 236
Side 237
Side 238

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.