Hugur - 01.01.2012, Page 66
66 Róbert H. Haraldsson
activity]. Hann leyfir þér að gleyma öllu eitt augnablik – þar með talið
misnotkuninni. Þetta er leið til að dreifa huganum eða framkalla æsing,
að endurskapa tilfinninguna sem þú upplifðir þegar þú varst misnotuð
í fyrsta sinn – sektarkenndina, hryllinginn, adrenalínflæðið. Þjófnaður
er einnig leið til að storka yfirvaldinu, tilraun til að ná til baka því sem
stolið var [frá þér], að jafna reikningana. Þjófnaður getur líka verið hróp
á hjálp.127
Þær lýsa fjárhættuspilum á svipaðan hátt en þó með þeirri viðbót að þau séu „leið
til að viðhalda þeirri von að lífið geti breyst á undraverðan hátt […] að réttlætinu
verði fullnægt“.128 Ekki er erfitt að ímynda sér aðdráttaraflið sem svo ljóðrænar
tilgátur geta haft í hugum kvenna sem hafa varið drjúgum hluta fullorðinsáranna
í þjófnað eða spilamennsku. Skýringin er fundin; sakleysið er endurheimt.129
Tvennt er sláandi við þessa aðferðafræði. Annars vegar er hún til þess fallin að
leysa viðkomandi konur í einni svipan undan allri ábyrgð á eigin lífi – á mistök-
unum, feilsporunum, brestunum, maka- og starfsvalinu o.s.frv. – en ábyrgð er
grundvöllur einstaklingseðlis og einstaklingsþroska.130 Hins vegar hefur orðræða
af þessu tagi tilhneigingu til að einfalda og „þynna út“ hið einstaklingsbundna líf
viðkomandi kvenna. Athafnir manna af holdi og blóði eiga sér margfalt flóknari
uppsprettur og orsakir en svona „móno-manískir“ skýringatilburðir gera ráð fyrir.
„Í samfélaginu í kringum bældar minningar“, skrifa Ofshe og Watters,
er litið á misnotkun sem skilgreinandi reynslu í lífi einstaklingsins. Sjúk-
lingar eru hvattir til að skoða sjálfa sig ekki sem flókna einstaklinga með
frjálsan vilja og getu til að móta eigið líf heldur sem einvíðar verur [one-
dimensional creatures] er deila einni skilgreinandi reynslu – kynferðislegri
misnotkun. […] Líf þessara sjúklinga er í reyndinni smættað niður í
summu misnotkana – ímyndaðra og annarra.131
Skoðun á bók Bass og David sýnir glöggt sanngildi þessara orða. Þær vitna t.d. í
eitt fórnarlamb eða eftirlifanda sem segir:
Fólk hefur sagt við mig, „Hvers vegna ertu að draga þetta fram í dags-
ljósið núna?“ Hvers vegna? HVERS VEGNA? Vegna þess að þetta
hefur stjórnað öllum þáttum lífs míns. Þetta hefur skaðað mig á allan
mögulegan máta. Það hefur eyðilagt allt í lífi mínu sem var einhvers virði.
127 Sama rit: 50–51.
128 Sama rit: 51.
129 Þær vitna í beinu framhaldi til frásagnar konu sem stal daglega í áraraðir eftir að hún hætti að
drekka og dró sér fjármuni frá tryggingarfyrirtækinu sem hún vann hjá. Eins og til að staðfesta
að stelsýkin hafi verið afleiðing misnotkunar hamrar konan á því að hún hafi ekkert haft að gera
við þá hluti sem hún stal. Hún hljóti því að hafa stolið þeim af öðrum ástæðum; væntanlega til að
deyfa sársaukann (51).
130 Athyglisverð undantekning er samkynhneigð sem er val kvenna að dómi Bass og Davis en ekki
afleiðing kynferðislegs ofbeldis (2002: 268–269).
131 Ofshe og Watters 1994: 79.