Hugur - 01.01.2012, Page 157
Hugur | 24. ár, 2012 | s. 157–174
Simone de Beauvoir
Vændiskonur og lagskonur
í efri stéttum
Við höfum séð að hjónabandið á sér beina hliðstæðu í vændi.1 „Yfirstéttarvændi“,
segir Morgan, „hefur fylgt mannkyninu alveg fram í siðmenninguna eins og
dökkur skuggi yfir fjölskyldunni.“ Til að tryggja sig dæmir eiginmaðurinn konu
sína til hreinlífis, en gengst ekki sjálfur við þeim skyldum sem hann þröngvar upp
á hana. Montaigne kunni að meta visku Persakónga. Hann segir þá hafa
óskað eftir félagsskap eiginkvenna sinna þegar þeir voru með veislur. En
þegar þeir urðu hreifir af víninu og voru við það að sleppa fram af sér
beislinu, sendu þeir konur sínar til herbergja sinna svo þær yrðu ekki
vitni að óbeisluðum löngunum þeirra. Í staðinn létu þeir færa sér konur
sem þeir þurftu ekki að bera virðingu fyrir af skyldurækni.
Þörf er á ræsum til að tryggja að hallirnar séu heilnæmar, sögðu kirkjufeður.
Mandeville olli fjaðrafoki er hann skrifaði: „Augljóslega er nauðsynlegt að fórna
hluta kvenna til að halda hinum hlutanum hreinum og koma í veg fyrir óþverra
af öðrum og viðbjóðslegri toga.“ Meðal þeirra raka sem amerískir þrælahaldarar
notuðu til að réttlæta þrælahald, var að þar sem hvítingjum frá Suðurríkjunum
væri hlíft við erfiðisvinnu gætu þeir haldið uppi fáguðum, lýðræðislegum sam-
skiptum sín á milli; að sama skapi gerði tilvist „föllnu stúlknanna“ mögulegt að
koma fram við „heiðvirðu konuna“ af riddaraskap. Vændiskonan er blóraböggull;
karlmaðurinn notar hana til þess að losa sig við skömmina og afneitar henni svo.
Hvort sem hún er lagalega sett undir lögreglueftirlit eða starfar með leynd, þá er
hún í öllu falli meðhöndluð sem úrhrak.
Frá fjárhagslegu sjónarmiði eru aðstæður hennar samhverfar aðstæðum hinnar
giftu. „Á milli þeirra sem selja sig með vændi og þeirra sem selja sig í hjónaband,
er eini munurinn fólginn í verði og samningstíma“, segir Marro.2 Fyrir þær eru
1 Sjá bindi I, 2. hluta.
2 La Puberté (Kynþroskaaldurinn).
„Prostituées et hétaïres“ er 8. kafli bókarinnar Le deuxième sexe (Síðara kynið), © Editions Gallimard,
Paris, 1949. Öll réttindi áskilin.