Hugur - 01.01.2012, Side 164

Hugur - 01.01.2012, Side 164
164 Simone de Beauvoir skiptavinirnir myndu glaðir neyta vörunnar án þess að borga og einhverjir myndu gjarnan vilja nota konuna til þess að fullnægja sadískum þörfum sínum. Í Madrid fyrir nokkrum árum léku ungir fasistar og iðjuleysingjar sér að því að henda vændiskonum í fljótið á köldum nóttum. Í Frakklandi fóru vínhreifir stúdentar stundum með konur upp í sveit og skildu þær þar eftir allsnaktar um miðja nótt. Til að afla tekna og forðast misþyrmingar þarf vændiskonan á karlmanni að halda. Hann veitir henni líka andlegan stuðning: „Þegar maður er ein á báti vinnur maður ekki eins vel, mann langar ekki að vinna verkið, maður rétt drattast áfram“, segja sumar. Oft ber hún ástarhug til hans; það er af ást sem hún tekur upp starfið eða réttlætir það. Í umhverfi hennar eru yfirburðir karla yfir konunni miklir. Þessi aðstöðumunur kyndir undir blindri trú á ást, sem skýrir ástríðufulla sjálfsfórn sumra vændiskvenna. Í ofbeldishegðun karlanna sjá þær tákn um karlmennsku þeirra og gefa sig þeim á vald og verða þeim mun auðsveipari. Með honum kynn- ast þær afbrýðisemi og kvalræði, en einnig gleðistundum hinnar ástföngnu. Engu að síður hafa þær stundum andúð á honum og bera kala til hans. Það er af ótta, af því hann heldur þeim uppi, sem þær eru áfram undir verndarvæng hans, eins og við sáum í tilfelli Marie-Thérèse. Þær leita þá oft huggunar hjá „ástvini“10 sem þær velja meðal viðskiptavina sinna. Marie-Thérèse skrifar: Fyrir utan sinn Julot áttu allar konur sér ástvini, ég líka. Það var mjög myndarlegur ungur sjóliði. Þrátt fyrir að hann væri góður í rúminu gat ég ekki fengið fullnægingu með honum. En það var mikil vinátta milli okkar. Oft kom hann upp til mín án þess að við hefðum samfarir, við töluðum bara, hann sagði að ég ætti að koma mér út úr þessu, að ég ætti ekki heima þarna. Þær leita einnig huggunar hjá konum. Stór hluti vændiskvenna er samkynhneigð- ur. Við höfum séð að oft má rekja upphafið að vændisstarfi til ástarævintýris með konu og að margar fóru að búa með ástkonu. Samkvæmt Önnu Rueling eru um 20% vændiskvenna í Þýskalandi samkynhneigðar. Faivre bendir á að í fangels- inu skiptast ungir kvenkynsfangar á klámfengnum bréfum með ástríðufullum áherslum og þær enda bréfin á orðunum „Sameinaðar að eilífu“. Þessi bréf eru keimlík þeim sem skólastúlkur skrifa sín á milli og kynda undir „báli“ í hjörtum þeirra. Þær eru ekki eins meðvitaðar og eru feimnari. Þær fyrrnefndu fara tilfinn- ingalega alla leið, bæði með orðum sínum og gjörðum. Marie-Thérèse var kynnt fyrir nautnum ástarlífsins af konu og við sjáum hversu stórt hlutverk „vinkonan“ leikur í lífi hennar sem mótvægi við fyrirlitlegan viðskiptavininn eða drottnunar- gjarnan verndarann: Julot kom með stelpu, vinnukonugrey sem átti ekki einu sinni skó á fæt- urna á sér. Við keyptum allt á hana á flóamarkaðnum og svo kom hún með mér í vinnuna. Hún var voðalega blíð og þar sem hún kunni þar að 10 [Í frumtexta: „béguin“. Þarna er átt við manneskju sem einhver verður skotin í eða kunnað er vel við, án þess að um eiginlega ást sé að ræða (sbr. „crush“ á ensku).]
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208
Side 209
Side 210
Side 211
Side 212
Side 213
Side 214
Side 215
Side 216
Side 217
Side 218
Side 219
Side 220
Side 221
Side 222
Side 223
Side 224
Side 225
Side 226
Side 227
Side 228
Side 229
Side 230
Side 231
Side 232
Side 233
Side 234
Side 235
Side 236
Side 237
Side 238

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.