Hugur - 01.01.2012, Page 209
Skotið yfir markið? 209
niðurdrep hinnar sönnu listar ef þeir eru gjörðir að markmiði. Þeir geta
verið góðir við og við vegna uppörvunar en verði knattspyrnustarfið
miðað aðallega við þá skemmir slíkt leikinn fyrir mörgum […]. Notið
þessa fögru list til að þroska líkama og sál, auka líkamlegan og andlegan
þrótt.80
Önnur persóna sögunnar, knattspyrnuþjálfarinn Theódór, vísar til þess sama í
Biblíunni þar sem segir: „Sá sem yfirvinnur sjálfan sig er meiri en sá sem vinnur
borgir.“ Og Páll postuli fær að eiga síðasta orðið hjá Theódóri: „Ef einhver fer að
keppa í leikjum verður hann ekki krýndur nema hann berjist löglega.“81
Boðskapur sr. Friðriks og gildi staðsetja hann mjög afdráttarlaust meðal þeirra
sem styðja hin rómatísku viðhorf til íþrótta og siðrænna þátta þeirra. En að sjálf-
sögðu bætir hann við eigin kristinni áherslu og boðskap sem samræmist í sjálfu
sér vel hinum fornu gildum drengskapar og heiðarleika. Þau kristnu áhersluatriði
að leggja meiri áherslu á þátttöku og fegurð íþróttanna en sigur og afrek virðast
þó stríða áberandi gegn keppnisskapi fornhetjanna og einbeittri sigurþrá þeirra.
Fyrir utan kristindóminn sem sr. Friðrik lagði mikla áherslu á voru hugmyndir
hans því mjög líkar þeim hugmyndum sem ungmennafélagshreyfingin byggði á.
Ef eitthvað var lagði hann þó enn meiri áherslu á fegurð íþróttanna. Um knatt-
spyrnuna samdi hann t.d. mikið ljóð sem þessar vísur eru hluti af:
Helst mun leiksins heiður styðja
hófstillt lund en framagjörn.
Drengileg sé dáð og iðja
drengileg í sókn og vörn.
Engin þeysing út í bláinn,
ekkert spark í fáti sett.
Öll sé leikmanns æðsta þráin
að allt sé fagurt, djarft og rétt.
Fram, fram, frækið lið!
Fram, fram, sækið þið!
Að því marki sem leikinn láti
lærdóm verða á þroskabraut,
tamning viljans með glóð í gáti,
glæðing dyggða í hverri þraut.
Þá að lokum er lífið þrýtur
leik er slitið, marki náð,
sigurlaun og hnossið hlýtur
hann er sýndi trú í dáð.82
80 Sama rit: 116–117.
81 Sama rit: 118.
82 Sama rit: 85–86.