Hugur - 01.01.2012, Page 63

Hugur - 01.01.2012, Page 63
 Andleg velferð mannkyns 63 Staðtölur um glæpi gegn konum sem hún tínir til úr ritum femínista eru sumar svo svakalegar að maður veigrar sér við að hafa þær eftir. Sem dæmi má nefna endurteknar fullyrðingar um að á ári hverju séu tæplega fjórar milljónir kvenna barðar til bana í Bandaríkjunum, að ofbeldi sé megin dánarorsök kvenna og að um 25% kvenna sem leita á neyðarmóttöku spítala séu þar vegna barsmíða karla.111 Eftirgrennslanir Sommers hjá landlæknisembætti Bandaríkjanna leiddi í ljós að um 1%, ekki 25%, kvenna á neyðarmóttökum eru þar vegna barsmíða karla. Helsta dánarorsök kvenna í Bandaríkjunum er líkt og karla hjartasjúkdómar.112 Kreddan um konur sem nokkurs konar eilífðarfórnarlömb markar alla sagnfræði og sam- félagsfræði femínista í kvennafræðum. Hún er aldrei lögð í dóm reynslunnar, ein- ungis er safnað gögnum sem styðja hana. Önnur kredda, sem þær stöllur gagnrýna harðlega, kveður á um að munurinn á konum og körlum sé ekki náttúruleg stað- reynd heldur félagslegur tilbúningur (e. social construction). Þessa kreddu nefna þær til marks um að kvennafræðingar hafa flestir afar litla þekkingu á raunvísindum, og raunar félagsvísindum einnig; afstaða þeirra til líffræði sé bókstaflega hlægileg. Enn önnur kreddan sem þær sjá í femínískum kvennafræðum er sú hégilja að allar vísindakenningar og öll vísindalögmál Vesturlanda séu í grundvallaratriðum bjöguð af feðraveldinu. Þessi kredda valdi því að afstaða femínískra kvennafræð- inga til vísindakenninga og lögmála vísindanna standist sjaldnast skoðun.113 Svar femínista við gagnrýni hér er hið sama og fyrr. Þeir benda á að hið sama gildi um alla aðra, öll fræði hvíli á tiltekinni heimssýn, tiltekinni hugmyndafræði. „Byggja ekki allar akademískar deildir á hugmyndafræði?“, spyr einn gagnrýnandi Patai. „Líða ekki allar háskóladeildir fyrir rifrildi og pólitísk átök? Gera ekki fremstu fræðimenn í flestum deildum ráð fyrir því að nemendur haldi sig við rétta „línu“ og er það ekki eina von þeirra til að ná langt í fræðunum?“114 Hugmyndin virðist ekki einungis vera sú að ofurselja tiltekin fræði hugmyndafræði og hagsmunum heldur beinlínis að rífa upp með rótum sjálfa hugmyndina um hlutlæg vísindi og hlutlaus fræði. Þriðja atriðið sem ég vil nefna úr greiningu Patai og Koertge er sú tilhneig- ing femínista að gera kyn, þjóðfélagsstöðu, kynþátt og kynhneigð „að töfralykli að öllum spurningum um sannleika og ábyrgð“.115 Gert er ráð fyrir því að staða viðkomandi einstaklings innan tiltekins hóps ákvarði öll rök hans og alla breytni hans.116 Mat á rökum og breytni annarra er algerlega bundið við að skoða stöðu, kyn, kynhneigð og kynþátt viðkomandi. Í staðinn fyrir að fá umræðu um rök sín og kenningar mega miðaldra hvítir (gagnkynhneigðir) karlar eiga von á að þeim 111 Sjá Sommers 2000: 48. Hún kallar staðtölur femínista haturs-tölfræði (e. hate-statistics). Sjá ýmist viðtöl við hana og fyrirlestra á Youtube. 112 Sommers 2000: 49, 221 nmgr. 18. Sjá einnig Sommers 1994: 188–208 og fyrirlestra Sommers á Youtube, t.d. „Violence Against Women“ (skoðað 30. ágúst 2012). Þegar ég samdi þennan hluta ritgerðarinnar hlustaði ég á viðtöl í Rúv við þrjá karla sem hata klám. Einn þeirra, Thomas Bror- sen Smidt, fullyrti að konur hvar sem er í heiminum hefðu ástæðu til að vera hræddar ef þær væru einar á ferð eftir að rökkva tæki og heyrðu fótatak einhvers sem væri fyrir aftan þær. 113 Patai og Koertge 2003: 340–341. 114 Sama rit: 300–301. 115 Sama rit: 80. 116 Sama rit: 75.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212
Page 213
Page 214
Page 215
Page 216
Page 217
Page 218
Page 219
Page 220
Page 221
Page 222
Page 223
Page 224
Page 225
Page 226
Page 227
Page 228
Page 229
Page 230
Page 231
Page 232
Page 233
Page 234
Page 235
Page 236
Page 237
Page 238

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.