Hugur - 01.01.2012, Page 125

Hugur - 01.01.2012, Page 125
 Samfélagsrýni og gamlar hættur 125 Hinir eru hluti af einstaklingnum, og eru yfir og allt um kring í umhverfinu og Dasein einstaklingsins staðsetur sig innan þess sviðs þar sem hlutir og tæki eru tiltæk og bregst við á viðeigandi hátt.40 Alastair Hannay bendir á hvernig Kierkegaard leggur sífellt áherslu á að innan þess tíðaranda sem hann lifir í skipti engu máli hver einstaklingurinn sé í raun og veru, svo lengi sem hann kalli ekki á athygli. Heimur sem er jafnaður á jafn neikvæðan hátt er almennur heimur sem enginn á og enginn gerir tilkall til. Sam- félag þar sem sjálfsverurnar eru óhlutbundnar er samfélag sem stjórnast af óhlut- bundum lögum sem hvorki tengjast náttúruheiminum né innra lífi mannsins.41 Því má með sanni segja að í því jöfnunarferli sem á sér stað í samfélaginu sem Kierkegaard lýsir færist einstaklingurinn fjær og fjær því verkefni að verða sjálf. Heidegger telur hins vegar að einstaklingurinn geti haldið sérkennum sínum en aðeins upp að vissu marki. Einstaklingurinn þarf alltaf að taka mið af umhverfinu og þar af leiðandi fólkinu í kringum sig, sama hversu fráhverfur umhverfinu hann kann að vera. Ef hann gæti einangrað sig algerlega væri hann í sömu sporum og íronistinn í Begrebet Ironi eða fagurkerinn í Enten/Eller.42 Það sem Heidegger heldur fram er að einstaklingurinn geti ekki flúið sína Veru-í-heiminum.43 Svo notað sé nærtækt dæmi má nefna að í póker er hægt að „pakka“ ef spilarinn fær slæma hönd, en þegar einstaklingnum er kastað inn heiminn verður hann að „kalla“ og halda leiknum áfram. Einstaklingurinn er þannig óhjákvæmilega hluti af umhverfi sínu, og því er hér ekki hægt að tala um eiginlega firringu í marxísk- um skilningi. Heidegger færist hins vegar nær nálgun Kierkegaards þegar hann ályktar að þegar Dasein fari of djúpt inn í þennan heim og týnist í honum, sé eig- inleg vera einstaklingins tekin burt af Hinum. Þetta er það sem Heidegger kallar das Man, einstaklingurinn hefur samsamað sig Hinum í sinni daglegu Veru-með- öðrum.44 Sú vera-með-öðrum sem das Man stendur fyrir, gerir Dasein óaðskiljanlegan hluta af Hinum. Einkenni okkar sem einstaklinga mölbrotnar því og ægivald das Man sýnir sig. Við verðum hluti af stórri heild, og högum okkur eins og das Man segir okkur að eigi að haga sér, jafnvel þótt reglurnar séu hvergi skrifaðar. Vera okkar í daglega lífinu er forskrifuð af das Man.45 Áhrif Kierkegaards á Heidegger 40 Sama rit: 154. Með orðinu zuhanden reynir Heidegger að útskýra grundvallarskilning okkar á því hvernig við notum hluti, tæki og tól á „réttan“ eða viðeigandi hátt. Ef hlutir eru ekki tiltækir, eða í „þekkingarlegri nálægð“, eru þeir merkingarlausir og við myndum ekki vita hvernig við ættum að nota þá. Ef við vitum ekki hvernig nota á hamar, verður hann hjákátleg smíð í augum okkar. 41 Hannay 2003: 174. 42 Frá veruleika fagurkerans hefur þegar verið greint í þessari umfjöllun. Í Begrebet Ironi er greint frá því hvernig unnt er að öðlast fjarlægð frá öðru fólki með því að nota kaldhæðnina sem vopn. Öðlist einstaklingurinn þessa fjarlægð þarf hann ekki að takast á við skuldbindingar daglega lífsins. Hann öðlast því á endanum það sem Soderquist (2007: 96) kallar „sífellda firringu“. Ein- staklingurinn er í raun aldrei til staðar. 43 Vera-í-heiminum er grunnur Verunnar. Það er ástand Dasein, sem er a priori, en nær þó ekki að endurspegla kjarna Verunnar, því Veran á að vera skilin í tengslum við aðra, sjá Heidegger 1962: 160. 44 Heidegger 1962: 163. Das Man myndi útleggjast á íslensku sem „maður“, eins og í „maður á að gera eitthvað“. Á ensku hefur hentug þýðing á þýskunni ekki fundist, og því er venjan að láta das Man standa óþýtt. Það verður einnig gert hér. 45 Sama rit: 164. Í þessu samhengi er hægt að velta því fyrir sér af hverju Mona Lisa er álitið frábært
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212
Page 213
Page 214
Page 215
Page 216
Page 217
Page 218
Page 219
Page 220
Page 221
Page 222
Page 223
Page 224
Page 225
Page 226
Page 227
Page 228
Page 229
Page 230
Page 231
Page 232
Page 233
Page 234
Page 235
Page 236
Page 237
Page 238

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.