Prestafélagsritið - 01.01.1926, Page 187

Prestafélagsritið - 01.01.1926, Page 187
178 Erlendar bækur. Prestafélagsritið* Michael Neiiendam: „Kritik og Tro“, — Gyldendalske Boghandel- Nordisk Forlag. Köbenhavn — Kristiania. 1924. — 101 bls. — Höfundur bókar þessarar er kunnur æðimörgum Reykvíkingum frá því I vor, þegar hann heimsótti oss og flutti ágæta fyrirlestra í Háskólanum og prédikaði í Dómkirkjunni. Hann er sóknarprestur í nánd við Kaup- mannahöfn, en hefir jafnframt haldið fyrirlestra við Kmh.-háskóla, því að hann er doktor í guðfræði fyrir ritgjörð um prestinn og rithöfundinn Christian Bastholm (f. 1740, d. 1819) og guðfræðistefnu þá, er hann var fulltrúi fyrir. Heitir þessi doktorsritgjörð: „Christian Bastholm. Studier over Oplysningens Teologi og Kirke. 1922“. Bók doktorsins „Kritik og Tro„ er um vandamálið, hvernig líta beri á sambandið milli vísindalegrar guðfræði og kristilegrar trúar og hvernig bezt verði ráðið fram úr trúarlegum erfiðleikum þeim, er séu á vegi vís- indalega mentaðs nútímamanns. Byrjar höfundur á inngangi, er hann nefnir „Historisk Orientering", en skiftir síðan bókinni í 3 kafla. Lýsir fyrsti kaflinn hinum vísindalegu sögurannsóknum á uppruna og heimildum kristindómsins og sambandi hans við önnur trúarbrögð, og gerir grein fyrir meginreglum þeim, sem farið hefir verið eftir við rannsóknir þessar. Ber kaflinn yfirskriftina: „Den historiske Kritiks Væsen, Indhold og For- mal“. — Næsti kafli gerir grein fyrir kristnu trúnni og leggur áherzlu á, að kristindómurinn sé ekki kenning, sem hægt sé að tileinka sér eins og hvern annan fróðleik, heldur sé kristna trúin líf í guðstrausti og guðs- samfélagi. Varar höfundur við þeim misskilningi, að halda að guðsþekkingin og guðssamfélagið sé bundið við hugsun mannsins eina og skynsemi hans. Nefnir hann þennan kafla: „Den kristne Tros Væsen, Indhold og For- mál“. — Eftir að hafa þannig Iýst verkefni og starfsaðferðum hinnar vís- indalegu guðfræði, og kjarna hinnar kristilegu trúar, fer höfundur að tala um samband vísinda og trúar, eins og menn alment hafi litið á það, og eins og hann telur réttast að gera sér þess grein. Leggur hann áherzlu á sjálfstæði hvors um sig, vísinda og trúar, en jafnframt á hitt, að kristileg lífsskoðun grundvallist fyrst og fremst á trúarreynslu manna og mótist í öllu af áhrifunum frá Kristi, við það að verða höndlaður af honum, lífi hans og kenningu. Þennan síðasta og lengsta kafla bókar sinnar nefnir höfundurinn: „Den historiske Forsken og den kristne Tro i deres ind- byrdes Forhold til hinanden". Eg tel ótvírætt að bók þessi eigi erindi til íslenzkra presta og að þeim þyki ánægja að kynnast þessum höfundi. S. P. S. Oscar Geismar: „Gammel Tro og ny Tænkning11. — H. Asche- houg & Co. Köbenhavn. 1924. — Verð 3,50. 103 bls. Þetta er að mörgu merkileg bók og einarðlega rituð. I Jesú Kristi hinum krossfesta hefir Guð opinberast mannkyninu. Hina persónulegu til- einkun guðdómsins verður hver maður að eignast fyrir eigin, innri reynslu.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205

x

Prestafélagsritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Prestafélagsritið
https://timarit.is/publication/489

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.