Tíðindi frá þjóðfundi íslendinga árið 1851 - 05.07.1851, Blaðsíða 51
47
íngu aö atkvæði þingmanna eiga aö hafa, að sá, sem hefur
fleiri atkvæði, gángi strax í stað forseta.
Jak. Guðmundsson: Eg vil heldur, að greinin sé óhögg-
uð; því eg held, að atkvæði manna séu í meiri blindni, heldur
en forseti, og því álít eg lientugast, að hann til taki, hvor vara-
forsetinn skuli i livert skipti gegna forsetastörfum, eptir því
sem hann sér hentugast.
II. Stephensen: Eg vil taka frant eitt atriði, til að sýna,
að bezt sé fallið, að forseti ráði, en ekki atkvæðafjöldi, Itver
gegna skuli forsetastörfum. Nú vill forseti ræða eitt mál, og
máske annar varaforseti líka, og j)á má það vera eptir sam-
kontulagi, liver gegnir forsetastörfum.
./. Skaptason: Mér virðist, að ef svoberundir, að forseti
vill tala á einliverjum fundi, j)á væri j)aö vel til fallið, að vara-
forseti strax í byrjun fundarins settist í forsetastól, svo j)eir
ekki einlægt væru að ltafa sætaskipti, er mér virðist gæti trufl-
að störfum forseta.
H. Stephensen: J>að getur j)ó verið, að forseti ekki finni
strax, að hann vilji tala á fundinum.
Forseti tók siðan 17. gr., j)á 18. gr., j)á 19. gr., og varð
engin umræða um neina þeirra.
Jvi næst var þriðji kafli frumvarpsins tekinn til umræðu,
og las framsögumaður hann u])p, 20.—29 gr., og mælti: Eg vil
einúngis leyfa mér að geta þess við 23. grein, að betur kynni
að fara, að setja púnkt eptirorðin: „kjósa þarf“, og fella úr orð-
ið „þá“, er á eptir kemur; mætti það þá skiljast um alla at-
kvæðagreiðsluna.
Forseti: Eg vil einúngis geta þess, að mér finnst orðið
Mhlutfallsnefnd“ ekki vera vel til fallið. Orðið „nefnd“ eru menn
vanir að brúka, þegar kosið er í nefndir, en ekki þegar hlut-
kesti ræður. Eg kynni betur við að hafa „deild“ eða „flokkur“.
Ef nefndinni eða þínginu litist um það hið sama sem mér, þá
mætti hafa tillit til þess í 21. gr.
H. Stephensen: Orðið „nefnd“ er gott orð, og vér erum
orðnir því svo vanir. Mismunurinn er sá, að hér er kosið eptir
hlutfollum, en annars kostar með rituðum seðlum.
Jak. Guðmundsson: Jegar eg gef gætur að þýðíngum
beggja orðanna, felli eg mig betur við að brúka „deild“. Orðið
„nefnd “er komið af sögninni „að nefna“, eður því, að menn eru