Tíðindi frá þjóðfundi íslendinga árið 1851 - 05.07.1851, Blaðsíða 244
240
hefur tekiö fleiri stafti til, en stjórnarfrumvarpiö, |)á ímyntla eg
mer, að stjórnin liafi gleymt, að taka þá fram, líkt og hún gjört
liefur í 3. gr.; þess vegna geta menn ei álitið, að nefmlin liafi
tekið fram fyrir hemlur á stjórninni, þó hún hafi til fært þá
staði, sem stjórnin virðist hafa fellt úr af gleymsku, heldur
miklu fremur fullkonmað ætlun stjórnarinnar.
P. Péíurssoti: Eg verð þó öldúngis að mótmæla því, að
stjórnin hafi gleymt, að til taka þessa staði; því hún mun ætla
að til taka þá með nýju lagaboöi, þegar reynslan er búin að
sýna, livernig útlemla verzlunin tekst í Reykjavík, og líka er
þeirra getið í ástæðum stjórnarfrumvarpsins.
Jak. Guðmundsson: Eins og mer þykir, að stjórnarfrum-
varpið takmarki of mikið verzlun utanrikismanna, þar sem það
vili bintla hana við Reykjavík eina, að minnsta kosti fyrst um
sinn, eins virðist mér á liinn bóginn, að nefndarálitiö tvístri
henni of mikið; því þó nefndarálitið ætli utanrikiskaupmönn-
um, að koma fyrst á 6 aðalverzlunarstaði, þá ætlar það þeim
líka, að fara þaðan aptur til allra löggildra kauptúna, auk þess
sem það ætlar liverjum dönskum lausakaupmanni, að koma
beinlinis inn á hvert kauptún, svo að með þessum hætti dreif-
ist þá verzlunin nokkurn veginn jafnt á milli allra kauptúna
landsins, sem eru 28, og með því móti bygg eg að ekkert
þeirra geti þroskazt til muna. En eins og það er auðséð, að
Reykjavík ein, sem liggur svo önuglega við á einum útskaga
landsins, mundi ekki nægja landinu sem að.alverzlunarstaður,
þannig held eg, að allri verzluninni væri varla skiptandi nema
milli 6 aðalkaupstaða, ef hvert kauptiin þetta ætti að verða
stórt. En afþvi ómögulegt er að sjá fyrirfram, liverjir 6staðir
mundu vera hentugastir til, að vera aðalkaupstaöir, þá vil eg
hehlur fallast á breytingaratkvæði þíngmannsins frá Ilúnavatns-
sýslu, að taka 12 staði til fyrst, en binda aptur lausakaupmenn
og utanríkismenn við þá, en leyfa fastakaupmönnum, að dreifa
vörunni út á hina staðina, og biða svo, þángað til að reynslan
er búin að sýna, hverjir 6 staðir af þessum 12 eru hentugastir
til, að vera aðalkauptún.
S. Gunnarsson: Jað er auðséð af ástæðunum fyrir 2. gr.
frumvarpsins, að tilgángur stjómarinnar er með fram sá, að
reyna til þess, að koma af með henni gömlum óvana, að fiski-
skip utanríkismanna fari inn á hverja vík, sem fæst, þó lögin
banni það; en mér finnst þessi óvani muni ekki leggjast niður