Tíðindi frá þjóðfundi íslendinga árið 1851 - 05.07.1851, Blaðsíða 113
109
Framsöffumaður: Eða: „5að er aðalreglan*.
Forseti: Já.
Síðan var greinin samþykkt með 41 atkvæði gegn 1.
3>á var liin 67. gr. upp borin af forseta fyrir þingið, og
samþykkt með 40atkvæðum gegn 2.
Síðan var upp lesin hin nýja grein, er nefndin vildi láta
bæta inn í, {tannig hljóðandi:
„Ekkert mál eða málsatriði er samþykkt, nema meiri hluti
atkvæða sé með; séu jöfn atkvæði með og móti, er málið
fallið*.
Jessi grein var samþykkt með 38atkvæðum gegn 4.
68., 69. og 70. gr. voru samþykktar, hver með 40 atkvæð-
um gegn 2.
Síðan var til umræðu tekið hið 43. breytíngaratkvæði, og
áleit þingheimurinn það fallið, samkvæmt 34. gr., en greinin
sjálf, liin 71., var samþykkt með 38 atkvæðum gegn 4.
jiví næst skoraði forseti á framsögumann og þingskrifara,
að laga frumvarpið eptir hinum ákveðnu breytíngum, og bar
undir þingið, hvort það vildi láta prenta þingsköpin upp aptur,
og féllust menn á það í einu hljóði.
Siðan vakti forseti máls á hinum þremur frumvörpum
stjómarinnar, og tók fram það þeirra, er ákvarðar stöðu ís-
lands í rikinu, svo sem það, er væri merkilegast ogmest áríð-
andi, og sem þvi hlyti fyrst að takast til umræðu, og skaut
hann því til þíngsins, hvort ekki mundi vera bezt, að velja
undir eins hlutfallsnefndir til þess, að kynna sér frumvörp
stjórnarinnar.
Jak. Guðmundsson: Eg fellst að sönnu á það, er forseti
stakk upp á, að láta stjórnarfrumvarpið fyrst koma til umræðu;
en eg vil leyfa mér að leiða athuga þíngmanna að því, hvort
það muni ekki vera formgalli, að fara nú þegar að velja hlut-
fallsnefndir, áður en búið er að samþykkja frumvarpið tilþing-
skapanna. Eg held það væri réttast að forminu til, að þingið
samþykkti það fyrst, kysi því næst embættismenn eptir því, og
setti að svo búnu hlutfallsnefndir.
Forseti: Eg ætla að skjóta því tilþíngsins, hvort nú þeg-
ar skuli setja hlutfallsnefndir, eða ekki fyr en seinna, sér í
lagi, ef þingmaðurinn, sem seinast talaði, óskar þess.
Jak. Guðmundsson: Eg óska, að þíngið gángi til atkvæða
um það.