Tíðindi frá þjóðfundi íslendinga árið 1851 - 05.07.1851, Blaðsíða 64
60
sé kosin. 5að kom til tals í nefndinni, að stínga upp á þeirri
aðferð, að þíngið mætti, ef því sýndist, setja nefnd, áður en mál
kemur til fyrstu umræðu; f>ví ef fyrsta umræða fer fram, áður en
nefnd væri sett, geta umræðurnar bæði orðið ólögulegri og málin
miður rædd, þar sem slíkt mundi fara skipulegar fram og
verða áreiðanlegra, efnefndin væri áður kosin, og menn þann-
ig væru búnir að kynna sér málefnin. $ess vegna var og um
það talað í nefndinni, að vel mundi eiga við, að búa til nýja
grein, er ákvæði, að hlutfallsnefnd mætti setja i málefnin á
undan fyrstu umræðu. Jví þó að slík ákvörðun sýnist máske
liggja í 48. gr., þótti nefndinni það ekki nógu ljóst. Vil eg
nú skjóta því til þíngmanna, livort þeir aðhyllast, að slíkri
grein sé við bætt.
G. Einarsson: Eptir minum skilníngi á þræði frumvarps-
ins, má greinin standa óumbreytt.
.lalt. Guðmundsson: Eptir tilætlun nefndarinnar með hlut-
fallsnefndirnar kann eg betur við, að greininni, sem framsögumað-
ur stakk upp á, sé bætt inn í, og einkum held eg það komi vel við,
þegar um mikilvæg málefni er að gjöra; því nefndin liefur líklega
ætlazt til, að hver flokkur ræddi aðalatriði málefnanna. Við það
kynnast þingmenn málefnunum, og geta betur séð, hverjir færastir
eru til þess, að verða kosnir í nefndir, til að semja álitsskjöl.
Eg verð því að mæla fram með því, að greininni sé bætt við.
II. G. Thordersen: Mér getur þó ekki fundizt viðbætir-
inn öldúngis nauðsynlegur; því mér þykir það nægja, eins og
framsögumaðurinn benti til, sein til er tekið i 48. gr. Hún bind-
ur ekkert hendurnar á þíngmönnum; þeir geta strax ósk-
að þess eptir henni, að nefnd sé kosin, þegar þörf þykir. Mér
fyrir mitt leyti þykir ekki þörf á viðbótinni.
,1a.h. GuÖmundsson: jiað gæti verið athugavert, hvað
hlutfallsnefndirnar snertir, að ef 2 eða 3 aðalmálefni koma
fyrir undir eins, hvort þá eigi að kjósa nýja hlutfallsnefnd í
hvert þeirra, eða aflienda þau þeirri hlutfallsnefnd, sem þegar
væri kosin.
Framsötfumaður: jietta er að vísu satt; en nefndin ætl-
aðist ekki til, að tilhögun hlutfallsnefndanna væri stöðug regla,
sem gengi í gegnum allt þíngið, heldur að þær væru settar í
öllum hinum mikilvægari málefnum, svo að þingmönnum gæí-
ist færi á, að kynna sér þau. Og af þessu flýtur, að það er
komið undir ákvörðun þíngsins í hvert skipti.