Tíðindi frá þjóðfundi íslendinga árið 1851 - 05.07.1851, Blaðsíða 417
413
í nefndimar voru kosnir, Iiafa ekki getað lokið af starfa sin-
um á f>eim tíma, sem 3 nefndir, sem liefðu liaft sina nefndar-
menn hver, Iiefðu getað leitt málin til lykta.
Einúngis eitt af f>eim málum, sem fundurinn fékk til um-
rœðu, er á enda kljáð; hin tvö önnur: „Um stöðu íslands í
ríkinu“, og „Um kosningar til alþingis“, eru enn }>á óbúin. Uin
hið siðar nefnda mál er enn J>á alls ekki komið nefndarálit til
fundarins, og hvað hið fyr nefnda mál snertir, }>á eru að visu
2 nefndarálit komin um }>að til fundarins í fyrra dag; en álit
meira hluta nefndarinnar er svo xir garði gjört, að fundurinn
ekki liefur nokkra heimild til, að taka f>að til umræðu, og
máli }>essu gæti }>ví ekki orðið frekar framgengt, nema J>ví að
eins, að því væri vísað aptur til nefmlarinnar til nýrrar og lög-
legri meðferðar. Jessi tvö mál eru þannig líkt á veg komin,
og }>á eg lagði þau fyrir fundinn, og lenging þingtimans um
fáa daga, en ekki getur verið tiltökumál nema að eins umfáa
daga, gæti því ekki liaft annan árángur en þann, að landið
fengi að bera enn þá fleiri útgjöld til einkis gagns, en þegar
hvila á því.
Til að baka landi þessu fleiri óþarfaútgjöld, en orðið er,
finn eg alls ekki ástæðu, og mun eg þvi, samkvæmt þeim
myndugleika, sem vor allra- mildasti konúngur hefurgefiðmér
til þess, og sem eg hef lagt fyrir fundinn, nú þegar enda fund
þennan.
Og lýsi cff þá yfir i nafni konúnys (./. kandíd. Sigurös-
son: Má eg biðja mér hljóðs, til að forsvara aðgjörðir nefnd-
arinnar ogþingsins? Forseti: Nei.), að fundinum er slitið.
J. kandid. Sigurðsson: 5á mótmæli eg þessari aðferð.
Konúngsfulltrúi (Um leið og hann og forseti gengu
burt úr sætum sinum): Eg vona, að þingmenn liafi lieyrt, að
eg hef slitið fundinum í nafni konúngs.
J. kandid. Sigurðsson: Og eg mótmæli í nafni konúngs
og þjóðarinnar þessari aðferð, og eg áskil þinginu rétt til,
að klaga til konúngs vors yfirlögleysu þeirri, sem liér er höfð
í frammi.
5á risu upp þingmenn, og sögðu flestir í einu liljóði:
Vér mótmœlum allir!