Tíðindi frá þjóðfundi íslendinga árið 1851 - 05.07.1851, Blaðsíða 236
232
bref utanlnnds frá, mega beinlinis sigla upp á sex stöðum hér
við land, og innanrikis-lausakaupmenn mega fara strax á bvert
kauptún, sem löggilt er, til að verzla.
Framsöffumaður: Eg á bágt meðaðskilja, að menn geti
gjört leiðarbréf framar að amtmannamáli en sýslumannamáli,
J)ó að svo sé farið að í frumvarpinu, að stiptamtmaðurinn sé
gjörður að eins konar nýlendujarli í þessu; en hitt er auðséð,
að lögreglustjórunum á liverjum stað er eins trúandi fyrir, að
veita leiðarbréf, eins og að skrifa á jtau.
P. Petursson: Eg vil leyfa mérað spyrja liinn háttvirta
forseta, livort það beyri ekki undir 5. gr., að tala uin leiðar-
bréfin.
Forseti: Eg neita {iví ekki, að ræður manna eru nokkuð
orðnar á reyki.
Jak. Guðmundsson: Eg get ekki séð, að í þessari grein
sé nokkur annar munur á frumvarpi stjórnarinnar og uppá-
stúngu nefndarinnar en sá, að í fruinvarpinu er tekinn t.il einn
staður, en nefndin hefur stúngið upp á 6; en í öllu öðru sýn-
ist mér að nefndin sé samdóma frumvarpinu.
//. Stephensen: Nefndin hefur stúngið upp á, að Jiað
megi verzla, en í frumvarpinu er þess einúngis getið, að {>au
megi hleypa inn. Jetta leyfi, sem nefndin hefur stúngið
upp á að veita, gefur mönnum kost á, að flytja farma og
leigja skip, ef {>au bafa fengið leiðarbréf hjá stiptamtmanni,
og fyrir því finnst mér, að umræður uin þetta mál eigi hér við.
P. Petursson: Eg vildi spyrja nefndina að, livort {>au
skip þuríi að liafa með sér vöruskrá, sem ekki Iiafa leiðarbréf,
en koma {>ó hingað til að verzla. Mér skilst ekki betur, en
þetta sé meiningin í 2. gr.; {>ví {>ar er ekki talað um vöruskrá,
en í 7. gr. er liverjum þeim utanríkismanni, sem siglir Iiíngað
mcð leiðarbrefi, gjört að skyldu, að liafa með sérvöruskrá, og
finnst mér þetta vera nokkur ójöfnuður og mótsögn í nefndar-
álitinu, sem getur leitt þ.að af sér, að skip hleypa hér inn
vöruskráar- og leiðarbréfs-laus, og geta þannig farið í kring
um lagaboðið.
Framsögumaður: 5á vil eg leyfa mér að spyrja þing-
mannirtn að annari spurníngu. Ilvað ætlar bann að gjöra við
skip, sem koma liíngað með vörur leiðarbréfslaus ? Iivort ætl-
ar bann að lofa þeim að leysa leiðarbréf, eða reka þau á
burt? Nefndin hefur ætlazt til, að yfirvaldið greiddi úr þessu