Tíðindi frá þjóðfundi íslendinga árið 1851 - 05.07.1851, Page 111
107
Breytíngaratkvæðinu var síðan hrundið ineð 40 atkvæðum.
41. gr. var samþykkt með 41 atkvæði gegn 1.
Síðan lét forseti gánga til akvæða um 42. gr., og var hún
samþykkt með 41 atkvæði gegn 1.
3?á tók forseti 43. gr. til uinræðu.
./. hreppst. Sif/urðsson: Ástæða sú, sem eg hafði fyrir
mér, til að bera upp breytingaratkvæði mitt, var, að koma í
vegfyrir, að Jiingskapanefndin fiyrfti að gjöra nýjar ráðstafanir,
ef eitthvert málefni ekki gæti fengizt prentað, sem maður get-
ur hugsað sér að komi fyrir.
Breytíngaratkvæðið var siðan fellt með 31 atkvæði gegn 11.
43. gr. var síðan samþykkt með 41 atkvæði gegn 1.
44. gr. — samþykkt meö 39 atkvæðum gegn 3.
45. gr. — ---- með 41 atkvæði gegn 1.
46. gr. — ---- með 41 atkvæði gegn 1.
Forseti: Nefndin hefur stúngið upp á, að hér komi ný
grein inn í.
Framsöi/umaður: Nefndin hefur st.úngið upp á þessari
viðaukagrein, ekki af því, að hún væri hrædd um, að orða-
breytingar og ýmislegir gallar, sem verða kynnu á fyrirkomu-
lagi málsins, ekki gætu lagast við 3. umræðuna, heldur
af þvi, að henni þótti vissara, að finna eitthvert ráð til, að bæta
úr göllum þessum, ef þeir fyndust, eptir að málið hefurveriðí
þriðju umræðu á þíngi. Nefndin hafði og í þessu atriði lilið-
sjón af þvi, að á ríkisþíngi Uana vantaði grein um þetta í
þíngskapareglurnar, og þurfti að bæta lienni inn í seinna. En
þó að þíngið hér sé ekki eins stórt, og þess vegna ekki eins
liætt við, að þessa þurfi ineð, þá getur það samt komið fyrir
eins á fámennum þingum og fjölmennum.
Forseti: Eg fyrir mitt leyti vil heldur óska, og sýnist
mér það vera tiltækilegra, að slíkir gallar séu leiðréttir við
þriðju umræðu; annars verða fjórar umræður um málið, efþessu
er farið fram, og það lield eg livorki eigi né þurfi að vera.
Eg man ei lieldur til, að Danir hafi nokkurn tíma liaft fjcúar
umræður um nokkurt málefni á þíngi sínu.
Síðan var gengið til atkvæba, og var viðaukagrein nefnd-
arinnar sainþykkt með 39 atkvæðum gegn 3.
5á var 47. gr. samþykkt með 38 atkvæðum gegn 4.
$á tók forseti 48. gr. til umræðu.
G. Brandsson: Eg kom að vísu ekki með nertt breyt-