Tíðindi frá þjóðfundi íslendinga árið 1851 - 05.07.1851, Page 337
333
þ. Svehibjömsson: Má ekki taka atkvæði uni 42. tölulið
fyrst ?
P. Melsteð: J>ó að nefndin hafi fallizt á orðabreytínguna,
verður samt munur á breytíngaratkvæðinu og grein nefndar-
innar; því í breytingaratkvæðinu stendur: „Hver sá“, o. s. frv.,
en nefndin segir: „Hver sá utanríkismaður“, og með f>ví eru
I'á Danir undan skildir. Nú geta þeir allt að einu eins og ut-
anríkismenn flutt sóttir lnngað til lands, og því þykir mérbet-
ur eiga við, að lagaboöið nái einnig yfir þá; það tryggir land-
ið betur.
Jón Guðmundsson: Mikið rétt!
P. Petursson: Eg vildi leyfa mér að leita upjilýsingar
um, livort þau skip, sem ekki bafa fanna, en ætla þó liíngað
til verzlunar, eigi eptir breytíngaratkvæði þingmannsins úr
llúnavatnssýslu að bafa þessi skilriki (./. Slcaptasson: Jú,
sjálfsagt); þvi mér virðist nauðsynlegt, að öll skip, sembíng-
að koma til verzlunar, bafi þessi skilríki, livort sem þau koma
hlaðin eða tóm. En sé þetta svo, þá er það nákvæmar til tek-
ið í nefndarálitinu, en í þvi breytíngaratkvæði, sem bér ræð-
ir um.
Forseli: Eg skal þá leyfa mér að lesa upp breytíngar-
atkvæðið eins og mér skilst það eigi að vera orðað við grein
neihdarinnar.
J. Skaptasson: Mér finnst nú enginn verulegur munur
orðinn á grein nefndarinnar og breytingaratkvæðinu, svo eg
ætla að taka það aptur.
P. Melsteð: Eg held það sé þó verulegur munur á þeim,
og vil eg því taka breytíngaratkvæðið að mér.-
P. Petursson: Eptir nefndarálitinu er það óákveðið, bvort
skipin hafi farma eða ekki, en breytingaratkvæðiö talar ekki
ncma um þau skip, sem bafi verzlunarfarma, svo að eg verð
að álita landinu að einu leyti miður borgið eptir breytíngar-
atkvæðinu.
Forseti: Oskar þá þingmaðurinn, að breytíngaratkvæðið sé
nú þegar borið undir atkvæði?
P. Melsteð: Ónei.
Forscti: Eg ætla þá að biðja þíngmenn, að gánga til at-
kvæða um 42. tölulið á atkvæðalistanum.
P. Piitursson: Áður en atkvæða er leitað um 43. tölulið,
vil eg leyfa mér að spyrja nefndina, bvað þar er meint með: